Trefilov: Mun minnast á Júlíus í ævisögunni Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Árósum skrifar 11. desember 2010 19:18 Evgeny Trefilov, þjálfari Rússlands. Mynd/AFP
Evgeny Trefilov, þjálfari Rússlands, fór mikinn á blaðamannafundi eftir leikinn gegn Íslandi í dag. Rússar unnu leikinn, 30-21. Júlíus talaði fyrst á fundinum og sagði að Ísland hafi átt erfitt með rússnesku vörnina eftir að Trefilov breytti henni í 5+1. „Ég vil þakka íslenska þjálfaranum fyrir að leikgreina okkar lið. Ég mun minnast á hann í ævisögu minni," sagði Trefilov. Hann beindi svo spjótum sínum að eigin leikmönnum og sagði frammistöðu þeirra hafa verið hræðilega í leiknum. „Ef þessir leikmenn væru að vinna í verksmiðju væri þeim ekki borgað fyrir vinnuframlagið," sagði hann meðal annars. Hann ásakaði einnig blaðamenn um að gera sér lífið leitt. „Ég gæti svarað spurningum þeirra hvernig sem er. Ég gæti alveg eins barið hausnum mínum í þennan vegg." En túlkurinn, hugguleg ljóshærð stúlka, var í náðinni hjá Trefilov. „Ég er ástfanginn af túlkinum mínum," sagði hann og brosti. Þessi sami túlkur hafði varla undan að endursegja orð hans á ensku eftir frægan blaðamannafund eftir tapleikinn gegn Svartfellingum fyrr í vikunni.
Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira