Orð öreigans Sverrir Hermannsson skrifar 20. september 2010 06:00 Hinn 20. nóvember 2007 átti fréttamaður Stöðvar 2, Sigmundur Ernir, viðtal við Finn fátæka Ingólfsson. Þar sagði Finnur m.a.: „Það eru tvö mál sem standa upp úr þar í ádeilum á mig. Í fyrsta lagi er það að ég beitti mér fyrir formbreytingu ríkisviðskiptabankanna úr ríkisbönkum yfir í hlutafélög og steig fyrstu skrefin í einkavæðingu bankanna. Hitt sem að var umdeilt en ég sé ekki eftir að hafa gert vegna þess að það var forsenda fyrir því og er, lagði grunninn að þeirri útrás sem að bæði bankarnir og íslensk fyrirtæki hafa staðið í í dag. Bankarnir styrktust, þeir leituðu sér erlends samstarfs, þeir gátu betur þjónað íslensku atvinnulífi og við fórum í þessa útrás sem skilaði miklum arði erlendis frá inn í samfélagið og byggði upp þessi lífskjör." Þeir félagar ræddu um sölu bankanna og hluta Landsbankans í Vátryggingarfélaginu og taldi Sigmundur að þau mál hefðu verið óheppileg fyrir Framsóknarflokkinn, en Finnur segir: „Í fyrsta lagi bara, Sigmundur, alveg klárt, ég hef ekki hagnast persónulega um eina einustu krónu á þessu, það er bara nákvæmlega þannig." Þeim viðræðendum varð tíðrætt um Vátryggingarfélagið og lét Finnur þess getið að Sverrir Hermannsson hefði mjög gagnrýnt kaup hans og félaga hans á bréfum Landsbankans í Vátryggingarfélaginu. Og Finnur segir orðrétt: „Í mínum huga er þetta enginn glæpur. Það er þetta sem menn eiga að gera í viðskiptalífinu og eina sem gerist í þessu er það að gömlu tryggingartakarnir í Samvinnutryggingum sem að hérna tryggðu einu sinni fyrir mörgum árum, áratugum jafnvel síðar, það eru þeir sem njóta ávaxtanna af þeim styrk sem að Samvinnutryggingar eru að fá út úr því að hafa verið eigandi að Vátryggingarfélaginu og þess, það á að dreifa þessum ábata og þessum arði til þess fólks sem voru tryggingartakar í Samvinnutryggingum á sínum tíma…" Þá er bara eftir að spyrja: Hvað varð af þessum milljörðum, sem átti að dreifa svo faglega sem Finnur upplýsti? Kannski vill þingmaðurinn Sigmundur Ernir fá svar við því úr ræðustól Alþingis? Sigmundur spyr: „En skilurðu þessa umræðu í þjóðfélaginu?" Finnur: „Já, ég skil umræðuna í samfélaginu ágætlega og það sem hefur auðvitað gerst með þessum mikla hraða sem orðið hefur og þeim miklu eignabreytingum sem orðið hafa, þau tækifæri sem bankarnir hafa skapað og félögin og fyrirtækin í útrásinni, það hefur komið alveg ofboðslegur arður inn í landið og auðvitað er þessum arði misskipt. […] En aðalatriðið er þetta að öll þjóðin er að græða stórkostlega á þessu…" Líklega hefir maðurinn eitthvað ofmælt að þessu sinni, enda stendur nú til að draga ónytsama sakleysingja fyrir dóm eftir löngu úreltum lögum, vegna þess að mál skipuðust á annan veg en fátæklingurinn hugði í nóvember 2007. Á meðan ganga höfuðpaurarnir lausir, Davíð, Halldór og Finnur ásamt fylgifiskum, sem þyrftu þó nauðsynlega að laxérast rækilega. Sú lygasaga gengur staflaust, að Alfreð Þorsteinsson, meðan hann var og hét, hefði selt krónuleysingjanum Finni alla rafmagns- og hitamæla höfuðborgarsvæðisins fyrir sex hundruð milljónir króna, sem öreiginn leigir svo út fyrir aðeins kr. þrjú hundruð milljónir á ári. Þrátt fyrir þennan góða bisniss er Orkuveitan sögð greiðsluþrota. Það er áreiðanlega mikil nauðsyn fyrir margan manninn að biðja Guð að hjálpa sér. Aðeins er spursmál um milliliðinn eins og komið er fyrir klerkastéttinni í landinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun