Innlent

Flogið til Akureyrar en óvíst með Egilsstaði - annað flug fellt niður

Flogið hefur verið til Akureyrar í dag þrátt fyrir vonskuveður. Hinsvegar verður flug til Egilsstaða endurskoðað klukkan rúmlega sex í kvöld samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Flugfélags Íslands.

Flugi til Ísafjarðar hefur verið aflýst og verður endurskoðað á morgun.

Flugfélagið Ernir hefur hinsvegar aflýst flugi til og frá Höfn en þangað var flogið fyrr í dag. Þá hefur flugi til og frá Vestmannaeyjum einnig verið fellt niður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×