Sagður óútreiknanlegur 8. desember 2010 06:00 Ævisaga á ensku talin liður í undirbúningi alþjóðlegs starfsvettvangs.
Fyrir þingkosningarnar vorið 2007 segir í skýrslu bandaríska sendiráðsins að Ólafur Ragnar Grímsson forseti sé einn þeirra óútreiknanlegu þátta sem gætu haft áhrif á þróun mála eftir kosningarnar. Hann hafi nokkrum sinnum átt í deilum við ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, meðal annars um fjölmiðlafrumvarpið 2004. Hafðar eru eftir „sérfræðingum í núverandi stjórn" vangaveltur um að Ólafur Ragnar sé „sannfærður um að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sé að valda þjóðinni óbætanlegum skaða" og gæti því átt það til að „taka annað fordæmislaust skref í maí og veita einum vinstriflokkanna umboð til stjórnarmyndunar". Tæpu ári síðar, þegar Ólafur Ragnar skýrði frá því í áramótaræðu sinni að hann myndi bjóða sig fram til fjórða kjörtímabils í embætti, segir Neil Klopfenstein að með þessu hafi Ólafur frestað öllum áformum um að bjóða sig fram til alþjóðlegs embættis, til dæmis á vegum Sameinuðu þjóðanna. Jafnframt hafi áformum um að ævisaga forsetans yrði gefin út á ensku fyrir næstu jól verið frestað um óákveðinn tíma. „Ævisagan, sem líklega átti að hefja veg Grímssonar á alþjóðavettvangi, var víða talin liður í undirbúningi þess að hann skipti um starfsvettvang," segir Klopfenstein.- gb
WikiLeaks Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira