NBA í nótt: Kærkominn sigur hjá New Jersey Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. nóvember 2010 08:58 Brook Lopez og Josh Smith eigast við í leik New Jersey og Atlanta í nótt. Mynd/AP
New Jersey Nets vann í nótt sinn fyrsta sigur í fjórum leikjum er liðið lagði Atlanta Hawks í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, 107-101, í framlengdum leik. Brook Lopez skoraði 32 stig fyrir New Jersey og Devin Harris bætti við 27 stigum, þar af 23 í síðari hálfleik. Hjá Atlanta var Jamal Crawford stigahæstur með 21 stig og Josh Smith var með 20. Liðinu hefur ekki gengið vel að undanförnu og tapað sjö af síðustu níu leikjum sínum eftir að hafa unnið fyrstu sex á tímabilinu. New Jersey var með undirtökin nánast allan leikinn en skoraði ekki körfu síðustu tvær mínúturnar í fjórða leikhluta. Atlanta var þá fimm stigum undir en náði að jafna metin áður en venjulegum leiktíma lauk. Harris fékk reyndar tækifæri til að tryggja sínum mönnum sigurinn í síðustu sókn leikhlutans en allt kom fyrir ekki. New York vann Charlotte, 110-107. Toney Douglas skoraði 22 stig og New York vann þar með sinn fjórða sigur í röð. Washington vann Philadelphia, 116-114, í framlengdum leik. Nick Young setti niður þrist þegar lítið var eftir í framlengingunni og fór þannig langt með að tryggja sínum mönnum sigurinn. Indiana vann Cleveland, 100-89. Danny Granger skoraði 24 stig fyrir Indiana. Dallas vann Detroit, 88-84. Dirk Nowitzky skoraði 42 stig fyrir Dallas og tók þar að auki tólf fráköst. LA Lakers vann Chicago, 98-91, Shannon Brown skoraði 21 stig og Kobe Bryant 20 fyrir Lakers. Þetta var fimmti sigur liðsins í röð.
NBA Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira