Handbolti

Ásgeir Örn búinn að semja við Hannover

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ásgeir Örn Hallgrómsson.
Ásgeir Örn Hallgrómsson.

Landsliðsmaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson er genginn í raðir Hannover-Burgdorf. Hann hefur gert tveggja ára samning við þýska liðið.

Aron Kristjánsson tekur við Hannover í sumar en Ásgeir verður þriðji íslenski leikmaðurinn í herbúðum þess. Vignir Svavarsson gengur einnig til liðs við félagið í sumar og Hannes Jón Jónsson er þar fyrir.

Ásgeir yfirgefur því Faaborg sem leikur í dönsku annarri deildinni. Hannover-Burgdorf er sem stendur í fjórtánda sæti þýsku deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×