Innlent

Óþekktur bankamaður varaði Davíð Oddsson við

Óþekktur bankamaður kom á fund Davíðs Oddssonar, þáverandi seðlabankastjóra og varaði hann við ástandinu.
Óþekktur bankamaður kom á fund Davíðs Oddssonar, þáverandi seðlabankastjóra og varaði hann við ástandinu.
 

 

 

 

 

 

 

Í skýrslu Davíðs Oddssonar, formanns bankastjórnar Seðlabankans, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis kom fram að um mitt sumar árið 2008 hefði leitað til hans maður, sem hann vildi ekki nafngreina, sem vann í einum af stóru bönkunum.

Hann hefði komið með mynd, sem hann hafði teiknað af tengslum stærstu lánþega bankanna og hvað þessir tengdu aðilar hefðu fengið að láni í stóru bönkunum þremur.

Þetta hefði verið „bara venjulegur bankamaður"sem hefði blöskrað ástandið. Þannig hefði eitt fyrirtæki, þ.e. Baugur Group hf., t.d. skuldað samtals 700 til 800 milljarða kr. í þessum bönkum.

Maðurinn hefði bannað Davíð að sýna þetta skjal því hann hefði verið hræddur um starf sitt í bankanum. Þessi bankamaður sagðist aðeins vera kominn „með toppinn á þessu" þannig að ástandið gæti verið verra. Síðan sagði Davíð orðrétt:

„Og ef það var svo þá sá ég fyrir mér að þessir bankar mundu fyrr eða síðar allir fara á hausinn."

Aðspurður kvaðst Davíð hafa tekið mál um stórar áhættuskuldbindingar upp á fundi með Fjármálaeftirlitinu en þær upplýsingar sem hann hefði fengið frá forstjóra þess hefðu ekki stemmt við þær upplýsingar sem bankamaðurinn hefði veitt honum. Davíð var þá spurður til hvaða ráðstafana hann hefði gripið til þess að ganga úr skugga um hvað væri rétt í þessu.

Hann svaraði þá:

„Ég gerði engar sérstakar ráðstafanir aðrar en þær, ég hafði þessar upplýsingar, þær styrktu mig í þessari trú, ég var búinn að - ég reyndar held að ég hafi sagt mínum félögum frá því, að ég væri að fá upplýsingar sem væri verið að vinna sem virtust benda í þá átt að mínar áhyggjur í þessum efnum væru réttar en fullyrðingar Fjármálaeftirlitsins væru rangar. Ég sýndi þeim ekki þetta plagg en, af því að ég hafði bara [verið bundinn] trúnaði með það."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×