Lífið

Óþekktarormar fræga fólksins í Hollywood

Ólátabelgir Jolie-Pitt börnin eru miklir ólátabelgir og vekja foreldra sína með látum hvern morgun. nordicphotos/getty
Ólátabelgir Jolie-Pitt börnin eru miklir ólátabelgir og vekja foreldra sína með látum hvern morgun. nordicphotos/getty

Tímaritið In Touch tók viðtöl við nokkrar fyrrum barnfóstrur ríka og fræga fólksins nýverið og að sögn barnfóstranna eru börnin mörg hver heldur dekruð.

Fyrrverandi barnfóstra barna Angelinu Jolie og Brads Pitt sagði að henni hefði reynst erfitt að hafa hemil á barnaskaranum sem hljóp um húsið og skemmti sér.

„Krakkarnir byrjuðu daginn oftast á því að hlaupa inn í herbergi foreldra sinna og vekja þau með látum. Shiloh er með mjög stórt skap og tók oft frekjuköst og henti meðal annars oft mat í mig ef henni líkaði ekki máltíðin. Zahara var augljóslega leiðtoginn í hópnum og krakkarnir hermdu flest eftir henni,“ sagði barnfóstran.

Önnur barnfóstra sagði að Madonna hefði verið afskaplega strangt foreldri og yfirmaður og máttu börnin hennar ekki borða sykur, salt eða skyndibita. „Börnin fengu heldur ekki að horfa á sjónvarp og tímarit eða dagblöð voru ekki leyfð á heimilinu. Madonna er mjög strangur húsbóndi,“ var haft eftir fóstrunni.

Fyrrverandi fóstra dóttur Toms Cruise og Katie Holmes segir Suri mjög einangrað barn sem hitti sjaldan jafnaldra sína heldur sé stanslaust í kringum fullorðið fólk. Að sögn einnar fóstru Frances Bean Cobain, dóttur Kurts Cobain og Courtney Love, var stúlkan að mestu alin upp af fóstrum.

„Persónulega fannst mér Courtney ekki sinna barni sínu á nokkurn hátt. Hún hafði lítinn áhuga á Frances og lífinu sjálfu,“ sagði fóstran.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×