Lækkun húsaleigubóta Jens Fjalar Skaptason skrifar 29. október 2010 06:00 Frá árinu 1994 hafa húsaleigubætur staðið þeim sem leigja húsnæði til búsetu til boða. Í samræmi við þær áherslur sem eru ríkjandi í norrænni húsnæðispólitík er húsnæðisstuðningurinn bæði einstaklingsbundinn og tekjutengdur svo eðli máls samkvæmt er hann fyrst og fremst til hagsbóta fyrir þá tekjulægstu, t.d. námsmenn. Yfirlýst markmið með setningu laga um húsaleigubætur var einmitt það að lækka húsnæðiskostnað tekjulágra leigjenda og draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaðnum. Fyrir ríflega tveimur árum undirritaði núverandi forsætisráðherra reglugerð þess efnis að almennar húsaleigubætur myndu hækka í fyrsta skipti í átta ár. Jafnframt var kveðið á um þátttöku ríkisins í greiðslu sérstakra húsaleigubóta í fyrsta sinn. Ekki stóð ríkið við sinn hlut lengi og í byrjun mars árið 2009 gaf Samband íslenskra sveitarfélaga frá sér yfirlýsingu þar sem þau átöldu samkomulagsbrot ríkisins. Töluvert skorti á fjármagn til að hlutur ríkisins gæti talist að fullu efndur samkvæmt samkomulaginu. Nú bregður svo við að ríkisstjórnin hefur ákveðið að stíga skrefið til fulls afturábak. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er áformað að fella niður framlög til sveitarfélaganna vegna húsaleigubóta. Þetta skýtur skökku við áherslu núverandi ríkisstjórnar á aukinn félagslegan stuðning í þjóðfélaginu. Núverandi markaðsaðstæður gera það að verkum að töluverður hluti landsmanna ræður ekki við hið hefðbundna eignaréttarform sem hefur verið ríkjandi á íslenskum húsnæðismarkaði í áratugaraðir. Ungir námsmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref úr foreldrahúsum hafa flestir ekki fjárhagslegt bolmagn til að fjárfesta í eigin fasteign. Á sama tíma og fjöldinn allur af húsnæðiskosti stendur tómur þurfa æ fleiri stúdentar, sem þess eiga kost, að hverfa af leigumarkaði vegna hækkandi leiguverðs. Það er kominn tími til að ríkið bjóði þegnum sínum upp á húsaleigu sem raunverulegan langtímavalkost með sambærilegum hætti og tíðkast í öðrum Evrópuríkjum. Það er engum vafa undirorpið að lækkun húsaleigubóta hefur verulega slæmar afleiðingar í för með sér fyrir stúdenta. Úrræði til hagsbóta fyrir stúdenta hafa farið síþverrandi að undanförnu og hvatinn til þess að feta sig á leigumarkaðinn er enginn. Hagur þjóðarbúsins hlýtur að felast í því að íbúðarhúsnæði standi ekki autt og að stúdentar, jafnt sem aðrir leigutakar, haldi velli á leigumarkaðnum. Því takmarki væri náð með því að auka fjárhagslegan fýsileika íbúðarhúsnæðis, til dæmis með auknu vægi húsaleigubóta í leigujöfnunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Frá árinu 1994 hafa húsaleigubætur staðið þeim sem leigja húsnæði til búsetu til boða. Í samræmi við þær áherslur sem eru ríkjandi í norrænni húsnæðispólitík er húsnæðisstuðningurinn bæði einstaklingsbundinn og tekjutengdur svo eðli máls samkvæmt er hann fyrst og fremst til hagsbóta fyrir þá tekjulægstu, t.d. námsmenn. Yfirlýst markmið með setningu laga um húsaleigubætur var einmitt það að lækka húsnæðiskostnað tekjulágra leigjenda og draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaðnum. Fyrir ríflega tveimur árum undirritaði núverandi forsætisráðherra reglugerð þess efnis að almennar húsaleigubætur myndu hækka í fyrsta skipti í átta ár. Jafnframt var kveðið á um þátttöku ríkisins í greiðslu sérstakra húsaleigubóta í fyrsta sinn. Ekki stóð ríkið við sinn hlut lengi og í byrjun mars árið 2009 gaf Samband íslenskra sveitarfélaga frá sér yfirlýsingu þar sem þau átöldu samkomulagsbrot ríkisins. Töluvert skorti á fjármagn til að hlutur ríkisins gæti talist að fullu efndur samkvæmt samkomulaginu. Nú bregður svo við að ríkisstjórnin hefur ákveðið að stíga skrefið til fulls afturábak. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er áformað að fella niður framlög til sveitarfélaganna vegna húsaleigubóta. Þetta skýtur skökku við áherslu núverandi ríkisstjórnar á aukinn félagslegan stuðning í þjóðfélaginu. Núverandi markaðsaðstæður gera það að verkum að töluverður hluti landsmanna ræður ekki við hið hefðbundna eignaréttarform sem hefur verið ríkjandi á íslenskum húsnæðismarkaði í áratugaraðir. Ungir námsmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref úr foreldrahúsum hafa flestir ekki fjárhagslegt bolmagn til að fjárfesta í eigin fasteign. Á sama tíma og fjöldinn allur af húsnæðiskosti stendur tómur þurfa æ fleiri stúdentar, sem þess eiga kost, að hverfa af leigumarkaði vegna hækkandi leiguverðs. Það er kominn tími til að ríkið bjóði þegnum sínum upp á húsaleigu sem raunverulegan langtímavalkost með sambærilegum hætti og tíðkast í öðrum Evrópuríkjum. Það er engum vafa undirorpið að lækkun húsaleigubóta hefur verulega slæmar afleiðingar í för með sér fyrir stúdenta. Úrræði til hagsbóta fyrir stúdenta hafa farið síþverrandi að undanförnu og hvatinn til þess að feta sig á leigumarkaðinn er enginn. Hagur þjóðarbúsins hlýtur að felast í því að íbúðarhúsnæði standi ekki autt og að stúdentar, jafnt sem aðrir leigutakar, haldi velli á leigumarkaðnum. Því takmarki væri náð með því að auka fjárhagslegan fýsileika íbúðarhúsnæðis, til dæmis með auknu vægi húsaleigubóta í leigujöfnunni.
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun