Sverre: Maður verður að teljast heppinn Ómar Þorgeirsson skrifar 26. febrúar 2010 08:00 Sverre Jakobsson í baráttunni í leik með Grossvallstadt. Nordic photos/Getty
Landsliðsmaðurinn Sverre Jakobsson hjá Grosswallstadt er búinn að jafna sig eftir að hafa meiðst illa á vinstra auga fyrir tveimur vikum síðan. Betur fór en á horfðist þegar Sverre fékk þrumuskot beint í augað með þeim afleiðingum að linsa sem hann var með brottnaði þannig að blæddi mikið inn á augað. „Ég fékk grænt ljós á að byrja að æfa aftur á mánudaginn en átti bara að taka því rólega til að byrja með en ég kann það ekkert. Ég átti bara að vera að keyra þetta á svona 60-70 prósent hraða en var hins vegar bara á hundrað prósent keyrslu og rúmlega það. Ég fór svo í [gær] morgun í skoðun og það var allt í fínu lagi þannig að ég má spila með í næsta leik en verð samt áfram undir einhverju smá eftirliti næstu vikurnar. Það er fínt að komast aftur í gírinn og maður verður að teljast heppinn miðað við hvernig þetta hefði getað farið," segir Sverre. Sverre viðurkennir að hann eigi enn eftir að taka í hnakkadrambið á liðsfélaga sínum sem dúndraði boltanum í augað á honum með áðurgreindum afleiðingum. „Ég er búinn að segja þjálfaranum að það komi að því að ég eigi eftir að keyra þennan liðsfélaga minn í gólfið hvort sem það verður eftir tvo daga, tvær vikur eða tvo mánuði. Það mun pottþétt gerast og þá þýðir ekkert að benda á mig. Það þarf að vana hann við en ég held að þjálfarinn minn hafi nú reyndar ekki tekið mig alvarlega," segir Sverre hlæjandi en Grosswallstadt mætir Melsungen í þýska handboltanum á laugardag.
Mest lesið Markverði Víðis boðið til Real Madrid „Agndofa við að sjá þetta allt“ Fótbolti Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Körfubolti Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Handbolti Dæmir úrslitaleik Evrópudeildar þrátt fyrir umdeilda fortíð Fótbolti Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn Rændi banka á leiðinni á völlinn og dæmdur í 32 ára fangelsi Sport Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann Handbolti Alltaf markmiðið að spila fyrir Barcelona Sport Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Enski boltinn Fara fram á tveggja og hálfs árs fangelsi yfir Ingebrigtsen Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Alfreð kom Þjóðverjum á EM Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til „Borgar þrjátíu en færð hundrað prósent“ Sjá meira
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn