Lífið

Cheryl Cole aftur orðin Tweedy og byrjuð með Will.I.Am

Cheryl er hér á rauða dreglinum í Cannes um daginn. Hún og Will nutu sín einmitt saman í snekkjupartý í Cannes þar sem þau héldust meðal annars í hendur og sungu saman dúett fyrir hina gestina.
Cheryl er hér á rauða dreglinum í Cannes um daginn. Hún og Will nutu sín einmitt saman í snekkjupartý í Cannes þar sem þau héldust meðal annars í hendur og sungu saman dúett fyrir hina gestina.

Breski söngfuglinn Cheryl Tweedy stendur í erfiðum skilnaði við eiginmann sinn, Ashley Cole. Hún lætur það þó ekki á sig fá heldur virðist hafa fundið ástina á ný.

Eins og breskir fjölmiðlar hafa greint frá eru Cheryl og bakvörður enska landsliðsins í fótbolta, Ashley Cole, að skilja. Upp komst um stöðugt framhjáhald leikmannsins eftir að götublaðið The Sun birti nektarmyndir af Ashley sem hann hafði tekið á símann sinn og sent ungri snót. Ashley, sem er leikmaður Chelsea í London, var sagður vera í sárum eftir að hafa verið gripinn í bólinu og reyndi allt hvað hann gat til að vinna söngkonuna Cheryl aftur á sitt band. Um tíma virtist það ætla að takast en að lokum sagði Cheryl bless og skilaði meira að segja öllu glingrinu sem leikmaðurinn hafði keypt handa henni á meðan á sambandinu stóð.

Ashley er á leið á HM í Suður-Afríku með landsliði sínu og það verður væntanlega til að trufla undirbúning hans að mamma rapparans úr Black Eyed Peas, Will.I.Am hefur lýst því yfir að sonur sinn elski Cheryl Cole. Þau tvö hafa sést æ oftar saman og stöðugur orðrómur hefur verið á kreiki um að þau væru að rugla saman reitum. Yfirlýsingar móðurinnar verða eflaust ekki til þess að slá á þennan orðróm.

Reyndar var mamman, Debra Cain, loðin í svörum í síðasta mánuði og staðfesti að sonurinn ætti leynilega kærustu. Nú hefur hún sem sagt bætt um betur og opinberað verst geymda leyndarmál þotuliðsins á Bretlandi. „Vinátta þeirra hefur breyst í ást og Will þykir ákaflega vænt um hana. Honum finnst hún vera stórkostleg kona og ég er alveg sannfærð um að þau séu fullkomin fyrir hvort annað," sagði Cain í samtali við new!-tímaritið og bætti um betur þegar hún sagðist hafa gefið sambandinu sína blessun.

„Hún virðist vera yndisleg stelpa og ég get ekki beðið eftir því að hitta hana. Sonur minn talar bara fallega um hana og Will hefur lofað mér að næst þegar þau eru í borginni þá förum við saman út að borða."- fgg


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.