Innlent

Helgi í Góu: Hannes lifir lengur með okkur

Hannes Þór Helgason, sem var myrtur í Hafnarfirði um miðjan ágúst, skildi eftir sig son sem nú er ársgamall. Fjölskylda Hannesar vissi ekki af þessu fyrr en nýlega en afinn segir litla drenginn ljós í myrkrinu. Með þessu lifi Hannes lengur með fjölskyldunni.

Hannes Þór kynntist móður drengsins, sem er frá Eistlandi, þegar hún var við störf hér á landi. Skömmu eftir að hann lést setti hún sig í samband við fjölskyldu Hannesar og færði þeim þessar fréttir. Búið er að staðfesta að Hannes sé faðir barnsins. Móðirin er nú heimsókn hér á landi hjá fjölskyldunni en faðir Hannesar, Helgi Vilhjálmsson í Góu, er augljólega afar stoltur af litla afabarninu

„Hann heitir Siimm," segir Helgi. „Maður getur varla sagt þetta. Ef hann hefði verið skírður hér ætli hann héti þá ekki Helgi eða Jón eða eitthvað," segir Helgi og hlær.

Undanfarnir mánuðir hafa verið fjölskyldunni afar erfiðir og þetta voru því gleðifréttir sem bárust frá Eistlandi. „Það er engin spurning að þetta eru mjög góðar og skemmtilegar fréttir. Það er mikið búið að og ég vil nota tækifærið og þakka þjóðinni fyrir allan þann stuðning sem við höfum fengið," segir Helgi.

Litli drengurinn og móðir hans verða hér landi næstu daga en svo er framtíðin óráðin.

Nú styttist í að lögreglan ljúki rannsókn sinni á morðinu á Hannesi. Játning liggur fyrir og það sér fyrri endann á málinu. „Þessu líkur kannski aldrei hjá manni. Það má ekki gleyma því að það er hryllingur að lenda í svona og ég vona að það lendi engin í svonalöguðu," segir Helgi.

Hann hefur ekki ákveðið hvort hann verður viðstaddur réttarhöldin í málinu. „Þetta var það mikill hryllingur að hann getur ekkert orðið verri."

Þeir feðgar Helgi og Hannes voru afar nánir og unnu meðal annars saman hjá fjölskyldurfyrirtækinu. Helgi vonar að Siimm litli verði líka stór hluti af fjölskyldunni. Hann sé ljós í myrkrinu. „Það er gaman að sjá þetta ljós og þá lifir hann með okkur lengur."



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×