Borgarstjórinn í New York: LeBron myndi elska það að búa í New York Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. maí 2010 23:15 Michael Bloomberg, til hægri, með Boris Johnson, borgarstjóra London. Mynd/AP
Michael Bloomberg, borgarstjórinn í New York City, lét hafa það eftir sér í dag að ef LeBron James myndi leita ráða hjá honum þá myndi hann gera allt til þess að selja honum þá hugmynd að koma til New York borgar til að spila með annaðhvort New York Knicks eða verðandi Brooklyn Nets (nú New Jersey Nets). Það verður allt á öðrum endanum í NBA-körfuboltanum þar til að besti leikmaður deildarinnar ákveður hvar hann ætlar að spila í framtíðinni en LeBron James og félagar í Cleveland duttu út fyrir Boston í nótt og félagsskiptamarkaðurinn opnar síðan ekki fyrr en 1. júlí. Það telja flestir víst að LeBron hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Cleveland og hann hefur verið orðaður við Chicago Bulls, Miami Heat og svo New York liðin, New York Knicks og New Jersey Nets. „Það er orðrómur um að bæði Knicks og Nets vildu fá hann til sín og ég ætla ekki að gera upp á milli þeirra en það yrði frábært fyrir New York borg ef að hann kæmi hingað," sagði Michael Bloomberg í vikulegum útvarpsþætti sínum. „Ef hann myndi hringja í mig þá myndi ég reyna allt til að selja honum New York Borg," sagði Michael Bloomberg. „Ég elska að búa í New York, krakkarnir mínir elska það að búa í New York og ég held að LeBron James myndi einnig elska það að búa í New York enda er stærsta sviðið hér," sagði borgarstjórinn.
NBA Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport „Allir í kringum íþróttir ættu að hafa áhyggjur“ Sport Messi laumaðist inn á leikvang Barcelona og lét engan vita Fótbolti Gummi Ben fékk hláturskast ársins Fótbolti Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Liverpool kvartar í dómarasamtökunum Enski boltinn Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sektaður um þrjár milljónir fyrir að kasta flösku í áhorfanda Stólarnir gáfust ekki upp og gengu frá Manchester Tryggvi fagnaði fjórða Evrópusigrinum í röð Stjórinn sem skipti Doncic frá Dallas missir starfið Bæði Florída-liðin unnu á flautukörfu í nótt og svona fóru þau að því Lofuðu Óla Óla og fengu hann svo í beina útsendingu úr búningsklefanum Slakur undirbúningur hjá Ármanni: „Þær virðast koma bara alveg af fjöllum“ Blikarnir taplausir á toppnum Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Kári og Kristó eru skemmtilegasta kombóið í þessari deild NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin „Er ekki alveg viss um hvar hann hefur lært körfubolta“ Maddie Sutton í sögubækurnar í fámennum hóp Martin stigahæstur með tvöfalda tvennu Keflvíkingar bæta framherja frá Slóveníu í hópinn NBA vill koma deild í Evrópu á koppinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Uppgjör: Grindavík - Keflavík 104-92 | Ekkert stöðvar Grindvíkinga Óli Óla: Við getum alveg eins hrokkið upp af á morgun Uppgjörið: Ármann - Tindastóll 77-110 | Tindastóll of stór biti fyrir Ármann Varð sá hávaxnasti í sögunni Tvítug körfuboltakona með tímamótafjárfestingu Ingibergur hættir sem formaður: „Miklar tilfinningar innra með mér“ „Verður kannski mest krefjandi fyrir börnin mín“ „Þarf ekki að láta aðra segja mér hvort að liðið sé nógu gott“ Uppgjörið: Njarðvík - Stjarnan 101-105 | Langþráður sigur Íslandsmeistarana ÍA - Valur 81-83 | Grátlegt tveggja stiga tap á nýjum heimavelli Þór Þ. - ÍR 100 - 98 | Fyrsta sigrinum fagnað í Þorlákshöfn Uppgjörið: Álftanes - KR 108-89 | Stórsigur gegn vængbrotnu liði Banninu aflétt og Bretland mun mæta Íslandi Sjá meira