Björgvin Páll í miklu stuði í seinni og Ísland vann Spán Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2010 14:27 Björgvin Páll Gústavsson var frábær í seinni hálfleiknum. Mynd/Getty Images
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann góðan þriggja marka sigur á Spánverjum, 30-27, í undanúrslitaleik liðanna á hraðmótinu í Bercy-höllinni í París í Frakklandi. Björgvin Páll Gústavsson var maður seinni hálfleiksins þar sem að hann varði fjórtán af 19 skotum sínum í leiknum. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í íslenska liðinu með sex mörk en hann skoraði fimm af þeim í seinni hálfleiknum. Róbert Gunnarsson, Snorri Steinn Guðjónsson og Ólafur Stefánsson skoruðu síðan allir fimm mörk. Íslenska liðið byrjaði leikinn ágætlega, náði mest þriggja marka forskoti um miðjan hálfleikinn og var síðan tveimur mörkum yfir í hálfleik, 14-12, eftir að hafa skorað tvö síðustu mörk hans. Íslenska liðið byrjaði seinni hálfleikinn vel og náði strax þriggja marka forskoti. Íslensku strákarnir héldu því um stund og komust í 15-12, 16-13 og 18-15. Björgvin Páll varði vel í markinu á þessum tíma. Þá kom slæmur kafli þar sem íslenska liðið missti tvo menn útaf í tvær mínútur og Spánverjar nýttu sér það og jöfnuðu leikinn í 18-18. Spánverjum tókst þó ekki að komast yfir og íslenska liðið var enn með frumkvæðið ekki síst þökk sé Björgvin Páli Gústavssyni í markinu en hann varð 7 skot á fyrstu fimmtán mínútum seinni hálfeiks. Íslenska liðið náði í kjölfar markvörslu Björgvins flottum spretti og komst í 22-19 eftir þrjú mörk í röð - tvö frá Guðjóni Val Sigurðssyni og eitt frá Ásgeiri Erni Hallgrímssyni. Ísland var með öll völd á næstu mínútum, náði fjögurra marka forskoti í tvígang, 26-22 og 27-23 og komst síðan mest fimm mörkum yfir,28-23, þegar fjórar mínútur voru eftir. Spánverjar voru þó ekki því að gefast upp og náðu að minnka muninn í tvö mörk, 28-26, þegar rúm mínúta var eftir. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari tók þá leikhlé og íslenska liðið svaraði með því að klára leikinn. Ísland-Spánn 30-27 (14-12) Mörk Íslenska liðsins í leiknum: Guðjón Valur Sigurðsson 6 Snorri Steinn Guðjónsson 5/4 Ólafur Stefánsson 5/1 Róbert Gunnarsson 5 Alecxander Petersson 3 Ásgeir Örn Hallgrímsson 2 Sverre Jakobsson 2 Ingimundur Ingimundarson 1 Arnór Atlason 1 Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 19
Mest lesið „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Íslenski boltinn Aftur tapar Liverpool Fótbolti KR vann nýliðaslaginn Körfubolti Tottenham bjargaði stigi í Noregi Fótbolti Grindvíkingar horfa áfram út fyrir landsteinana Körfubolti Meistararnir byrja á góðum sigri Körfubolti Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 3-2 | Aftur mistókst Blikum að tryggja titilinn Íslenski boltinn „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Körfubolti Uppgjör: Víkingur - Valur 3-0 | Sannfærandi heimasigur í rigningunni Íslenski boltinn Heimir yfirgefur FH að tímabilinu loknu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir skutu Ringsted áfram Magdeburg fataðist flugið og Bjarki Már í úrslit Hroðaleg hnémeiðsli Janusar Daða Tryggðu sér sigurinn með því að skora síðustu fjögur mörkin Rut barnshafandi Haukur hafði betur í Íslendingaslagnum Eins marks sigur Valskvenna í Evrópudeildinni ÍBV með þægilegan sex marka sigur á Þór Sex marka tap í fyrsta Evrópuleik Selfyssinga Dramatískt jafntefli á Ásvöllum KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK Stjarnan sneri leiknum og lagði FH „Þetta var bara draumi líkast“ „Frábært að sjá Darra spila handbolta aftur“ „Munurinn á liðunum var einfaldlega markvarslan“ Uppgjörið: Fram - Haukar 27-32 | Haukar sigldu sigrinum í höfn í Úlfarsárdal Flautumark í Breiðholti Ómar Ingi markahæstur í sigri Magdeburgar Kaflaskipt í sigri Valsmanna Glimrandi byrjun Gummersbach heldur áfram Janus markahæstur í frábærum sigri á PSG Ásdís átti stórleik í stórsigri Vals KA/Þór með fullt hús stiga Bjarki skoraði fjögur mörk í mjög kaflaskiptum leik Mættur heim í Hauka eftir erfið ár í Frakklandi Segja leikmenn hafa kvartað undan Guðmundi Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Sjá meira