Aron vann Meistaradeildina tíu árum á undan Ólafi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2010 12:30 Aron Pálmarsson (númer 24) fagnar hér sigri ásamt félögum sínum í liðinu. Mynd/AP
Aron Pálmarsson vann sinn fyrsta stóra titil á ferlinum þegar hann vann Meistaradeildina með Kiel í gær og náði því þar með að vera áratug fljótari að vinna þennan eftirsótta titil en hinn sigursæli Ólafur Stefánsson. Ólafur Stefánsson var fyrir daginn í gær eini íslenski handboltamaðurinn sem hafði náð að vinna Meistaradeildina sem leikmaður en Ólafur vann Meistaradeildina í fjórða sinn á ferlinum í fyrra. Aron Pálmarsson og félagar í Kiel sáu til þess að Íslendingar eiga fulltrúa í besta liði Evrópu þriðja árið í röð en Ólafur hafði unnið Meistaradeildina með Ciudad Real 2008 og 2009. Aron Pálmarsson vann þarna sinn fyrsta stóra titil með THW Kiel en hann verður ekki tvítugur fyrr en 19. júlí næstkomandi. Aron varð því áratug á undan Ólafi Stefánssyni að vinna Meistaradeildina. Ólafur vann Meistaradeildina fyrst með SC Magdeburg 27. apríl 2002 þá rétt áður en hann varð þrítugur. Hann var þá að vinna sinn fjórða stóra titil með félaginu og hafði áður orðið EHF-meistari tveimur árum áður. Alfreð Gíslason þjálfaði lið Magdeburg þegar liðið vann Meistaradeildina 2002 og vann titilinn síðan aftur með Kiel í gær. Hann var því búinn að bíða í átta ár eftir að vinna Meistaradeildina.
Mest lesið Guðjón Ingi fagnaði í nótt á nýju brautarmeti Sport „Ætla ekki að segja hvað gerðist í þriðja hring“ Sport „Ömurleg frammistaða hjá gæjunum í gulu búningunum“ Íslenski boltinn Göfuglyndur Guardiola: „Heilt yfir var Arsenal betri aðilinn“ Enski boltinn Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport „Verðum að passa okkur að fara ekki í fórnarlambsgír“ Íslenski boltinn Arteta fyrstur í fimm deildarleiki í röð án taps gegn Guardiola Enski boltinn „Stefnan sett á topp fjallsins og við reynum að klífa þangað“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Stórleikur á Hlíðarenda, Stúkan og Gullknötturinn Sport Kátt á hjalla í Katalóníu Fótbolti Fleiri fréttir Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Sjá meira