Gummersbach vann Lemgo Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. maí 2010 06:00 Róbert Gunnarsson, til vinstri, í leik með Gummersbach. Nordic Photos / Bongarts
Gummersbach gefur ekkert eftir í baráttunni um Evrópusæti en liðið vann í gær góðan sigur á Lemgo á heimavelli, 29-24. Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark fyrir Gummersbach í leiknum en Vignir Svavarsson tvö fyrir Lemgo. Logi Geirsson var ekki í leikmannahópi liðsins. Gummersbach er nú með 41 stig í sjötta sæti deildarinnar, rétt eins og Rhein-Neckar Löwen sem er í því fimmta vegna betra markahlutfalls. Göppingen er svo í fjórða sæti með 42 stig en bæði síðarnefndu liðin eiga leik til góða. Flensburg er svo í þriðja sæti með 44 stig og er samkvæmt því á leið í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð ásamt toppliðum Hamborgar og Kiel. Liðin í fjórða og fimmta sæti fá svo þátttökurétt í EHF-bikarkeppninni. Hamburg og Kiel unnu bæði sína leiki í kvöld og er því Hamburg enn með eins stigs forystu á toppi deildarinnar. Hamburg vann Wetzlar, 31-19, og Kiel vann sömuleiðis öruggan sigur á Lübbecke, 34-26. Aron Pálmarsson skoraði þrjú mörk fyrir Kiel í kvöld. Heiðmar Felixsson skoraði tvö fyrir Lübbecke og Þórir Ólafsson eitt. Þá vann Füchse Berlin góðan sigur á Grosswallstadt á útivelli, 29-25. Rúnar Kárason skoraði tvö mörk fyrir fyrrnefnda liðið en Einar Hólmgeirsson náði ekki að skora fyrir Grosswallstadt. Bæði lið eru nú með 34 stig í 8.-9. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Lemgo sem er í sjöunda sæti.
Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Handbolti Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira