Að hengja bakara fyrir smið 29. júlí 2010 06:00 Því hefur verið haldið fram í fjölmiðlum að undanförnu að Actavis hafi hækkað lyfjaverð í skjóli „einokunaraðstöðu“. Þetta er rangt. Í fyrsta lagi er Actavis ekki í einokunaraðstöðu á Íslandi, því fer fjarri. Íslenski lyfjamarkaðurinn er opinn og markaðshlutdeild Actavis á Íslandi var 35% í magni en 13% í verðmæti árið 2009. Á Íslandi hafa tugir lyfjafyrirtækja markaðsleyfi. Dæmi hafa verið nefnd sem sögð eru varpa ljósi á málið. Skoðum staðreyndirnar. Lyfið Kínín var framleitt í elsta hluta lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði, sem nú hefur verið lokað. Það var kominn tími á endurnýjun og ekki annað að gera en að færa framleiðsluna. Í staðinn er komið sambærilegt lyf frá Actavis sem framleitt er í Bretlandi. Það er rangt að lyfið frá Actavis sé nú dýrara en áður, þvert á móti er hver tafla ódýrari í heildsölu frá Actavis. Það hefur nefnilega gleymst í umræðunni að Actavis selur ekki lyf í smásölu og hefur ekkert með smásöluálagningu að gera. Sama heildsöluverð og á NorðurlöndumHeildsöluverð á Íslandi miðast almennt við meðalverð á Norðurlöndum, en verðið er háð samþykki Lyfjagreiðslunefndar. Kínín, sem er notað við malaríu og sinadrætti, er raunar ekki á markaði í Danmörku, Finnlandi eða Noregi. Í Svíþjóð, þar sem lyfið er þó á markaði er heildsöluverðið hærra en á Íslandi. Misskilnings hefur gætt í umræðunni sem virðist vera vegna breytinga á reglum um smásöluálagningu sem tóku gildi 1. janúar 2009. Vegna þessara breytinga kemur í mörgum tilfellum fram hækkun til sjúklings, en hún er hvorki af völdum verðhækkunar hjá Actavis né rennur hún til fyrirtækisins. Smásöluálagning breytir myndinniÍ stuttu máli er álagningu í smásölu þannig háttað að 9% leggjast á heildsöluverð, þá 699 kr. á hvern pakka og loks virðisaukaskattur. Þannig kostar 28 stk. pakkning af Amitryptiline frá Actavis 10 mg nú 195 kr. í heildsölu frá Actavis, en 1.144 kr. í smásölu (195 + 9% + 699 + 25,5% vsk). Áður var einnig á markaði 100 stk. pakkning, en hún hefur ekki verið fáanleg frá verksmiðjunni erlendis. Tekið hefur verið dæmi um verðbreytingu á þessu lyfi, þar sem afgreiddar eru 4x28 stk. pakkningar, í stað einnar 100 stk. pakkningar áður. Vegna fyrrgreindra breytinga á smásöluálagningunni fær apótekið nú 2.866 krónur og virðisaukaskatturinn til ríkisins er 930 kr. Í þessu tilfelli hefur Actavis tekist að fá 100 stk. pakkningar á nýjan leik og munu þær koma á markað í lok árs, en sum þeirra lyfja sem um ræðir eru notuð í það litlu magni að ekki er hægt að fá sérstakar pakkningastærðir fyrir Íslandsmarkað. Actavis hefur þurft að færa framleiðslu 27 lyfja með þessum hætti síðan 2008. Þau voru framleidd í elsta hluta verksmiðjunnar þar sem komið var að miklum endurbótum. Þess vegna var óhjákvæmilegt að færa framleiðsluna. Hagkvæmast fyrir alla aðila var að gera það með þeim hætti sem valinn var. Actavis hefur leitað allra leiða til að finna sömu lyf í sömu styrkleikum og pakkningum og hefur átt í góðu samstarfi við Lyfjastofnun vegna þessa. Í einhverjum tilfellum hefur heildsöluverðið hækkað, en verð hvers lyfs er eftir þessar breytingar miðað við meðalverð á Norðurlöndum. Rétt er að árétta að þessi 27 lyf frá Actavis eru aðeins 15% af þeim lyfjum sem afskráð hafa verið á Íslandi á sama tíma. Þau lyf hafa önnur lyfjafyrirtæki afskráð. Vöruframboð allra lyfjafyrirtækja er í stöðugri endurskoðun og þróun, eftir því sem ný lyf koma á markað. Nýtt samheitalyf á mánaðarfrestiÞað eru fjöldamörg dæmi um samheitalyf frá Actavis sem hafa sparað sjúklingum og skattborgurum mikla peninga. Það mætti til dæmis nefna þunglyndislyfið Esopram, til að taka nýlegt dæmi. Verðmunur á algengustu pakkningunni miðað við frumlyfið er 103%. Þar munar tæpum 5.000 krónum í heildsölu hvað samheitalyfið frá Actavis er ódýrara en frumlyfið. Actavis leggur áherslu á að bjóða hágæða samheitalyf á sanngjörnu verði. Mörg þau nýjustu eru framleidd í verksmiðjunni í Hafnarfirði og skapa hundruð starfa í íslensku samfélagi. Þeim störfum hefur fjölgað um 500 á undanförnum áratug, og fjölgar enn. Íslendingar fá oft ný samheitalyf á undan nágrannalöndunum, en að jafnaði kemur eitt nýtt samheitalyf á markað frá Actavis á Íslandi á mánuði. Verð nýrra lyfja frá Actavis er við markaðssetningu að meðaltali þriðjungi lægra en verð frumlyfsins sem fyrir er á markaði. Actavis lítur björtum augum til framtíðar á Íslandi, hér eru spennandi þróunarverkefni í vinnslu, framleiðslugetan að aukast og ýmis tækifæri í lyfjaiðnaði sem stjórnvöld gætu mögulega nýtt betur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar