Handbolti

Aron skipar Hannes Jón sem fyrirliða Hannover-Burgdorf

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Hannes Jón, lengst til vinstri.
Hannes Jón, lengst til vinstri. Fréttablaðið
Hannes Jón Jónsson hefur verið skipaður nýr fyrirliði hjá Hannover Burgdorf. Aron Kristjánsson þjálfar liðið.

Aron tók við í sumar og var ekki lengi að skipa Hannes sem fyrirliða. Hannes kom til Hannover fyrir tveimur árum en hann fékk góðan félagsskap í sumar.

Fjórir Íslendingar verða hjá liðinu á næstu leiktíð en auk tvímenninganna munu Ásgeir Örn Hallgrímsson og Vignir Svavarsson spila með liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×