Ríkisstjórnarflokkarnir högnuðust um 69 milljónir 2008 2. febrúar 2010 12:29
Ríkisstjórnarflokkarnir tveir, Samfylkingin og Vinstri grænir, högnuðust um 69 milljónir kr. á rekstri sínum árið 2008. Þar af nam hagnaður Samfylkingarinnar rúmlega 58,5 miljónum kr. og hagnaður Vinstri grænna nam rúmlega 10,4 milljónum kr. Þetta kemur fram í útdrætti á reikningum stjórnmálaflokkanna sem Ríkisendurskoðun hefur birt. Hjá báðum þessum flokkum varð mikill viðsnúningur á rekstrinum frá árinu áður eða 2007. Það ár nam samanlagt tap þessara flokka 126 milljónum kr. Þar af nam tap Samfylkingarinnar tæpum 90 milljónum kr og tap Vinstri grænna rúmum 36 milljónum kr. Nokkur munur er á eignastöðu þessara tveggja flokka. Þannig eru eignir Samfylkingarinnar 98,6 milljónir kr. árið 2008 samkvæmt yfirliti Ríkisendurskoðunnar. Eignir Vinstri grænna eru hinsvegar tæpar 60 milljónir kr. Þessi eignastaða hjá báðum flokkunum breyttist lítið milli áranna 2007 og 2008. Eins og áður hefur komið fram eru framlög ríkisins langhæstu tekjupóstarnir hjá báðum flokkunum. Hjá Samfylkingunni námu þau tæpum 115 milljónum kr. árið 2008 en hjá Vinstri grænum námu þau tæpum 66 milljónum kr. Framlög lögaðila og einstaklinga námu rúmum 27 milljónum kr. hjá Samfylkingunni árið 2008. Athygli vekur að hjá Vinstri grænum var ekki um að ræða nein framlög lögaðila til reksturs flokksins á árinu 2008. Einstaklingar lögðu hinsvegar flokknum til rúmlega 18,7 milljónir kr. Rekstur Samfylkingarinnar kostaði tæpar 89 milljónir kr. árið 2008 sem er mikil lækkun frá árinu 2007 þegar reksturinn kostaði tæplega 268 milljónir kr. Rekstur Vinstri grænna árið 2008 kostaði rúmlega 43 milljónir kr. og lækkaði einnig verulega frá árinu 2007 þegar hann kostaði tæpar 103 milljónir kr.
Mest lesið Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Erlent Milljón dalir eða meira fyrir náðun Erlent Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Innlent Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Innlent Fleiri fréttir Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Sjá meira