Viðskipti innlent

Launakostnaður jókst um 5,6% til 7,7% milli ára

Árshækkun heildarlaunakostnaðar á greidda vinnustund milli fjórða ársfjórðungs síðasta árs og sama tímabils 2008 var á bilinu 5,6% til 7,7%.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að heildarlaunakostnaður á greidda stund jókst um 13% milli ársfjórðungana í samgöngum og flutningum, 10,8% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 8,5% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 7,3% í iðnaði.

Ef litið er til heildarlaunakostnaðar án óreglulegra greiðslna frá fyrri ársfjórðungi var aukningin 5,7% í samgöngum og flutningum, 5,6% í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu, 4% í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og 1,8% í iðnaði.

Í heildarlaunakostnaði án óreglulegra greiðslna eru greiðslur útilokaðar sem ekki eru gerðar upp á hverju útborgunartímabili eins og desemberuppbót.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×