Leikur Boston og Miami í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. október 2010 16:06 LeBron James. Mynd/AP
NBA-deildin í körfubolta hefst í kvöld með þremur leikjum en flestra augu verða örugglega á leik Boston Celtics og Miami Heat sem fram fer í Boston. Það var engin tilviljun að NBA-deildin stillti upp þessum leik á fyrsta kvöldinu og menn eru búnir að bíða spenntir eftir þessu uppgjöri í langan tíma. Stöð2 Sport mun sýna leikinn í beinni og hefst útsendingin klukkan 11.30. LeBron James mun spila þarna sinn fyrsta alvöruleik með Miami Heat eftir að hafa verið í sjö ár í Cleveland og Dwyane Wade spilar í fyrsta sinn með þá James og Chris Bosh sér við hlið. Það hefur verið mikið talað um styrk nýja ofurþríeykisins hjá Miami og margir hafa örugglega "móðgað" keppnismennina í Boston sem ætla ekki að gefa frá sér Austrið svo auðveldlega. Þegar LeBron James stígur inn á völlinn í Boston Garden í nótt verða liðnir 110 dagar frá því að hann tilkynnti heiminnum "Ákvörðunina" í beinni útsendingu. Shaquille O'Neal mun líka spila sinn fyrsta alvöruleik með Boston Celtics í kvöld en hann hefur á undanförnum árum spilaði bæði með Dwyane Wade og LeBron James. O'Neal vann meðal annars titilinn með wade árið 2006. Boston-menn fóru alla leið í sjöunda leik í lokaúrslitunum í fyrra og á leiðinni þangað slógu þeir bæði út LeBron og félaga í Cleveland sem og Wade og félaga í Miami. Boston-liðið gæti líka verið sett upp sem fyrirmynd fyrir nýja ofurþríeykið í Miami því þeir Paul Pierce, Ray Allen og Kevin Garnett urðu NBA-meistarar á sínu fyrsta ári eftir að þeir sameinuðust undir merkjum Boston tímabilið 2007 til 2008. Leikurinn í nótt hefst klukkan 11.30 að íslenskum tíma og verður eins og áður sagði í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
NBA Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Einn sá besti færir sig um set Sport Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira