Kraftaverka-sigurkarfa Tyreke Evans í nótt - myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. desember 2010 10:15 Tyreke Evans, lengst til hægri, í leiknum í nótt. Mynd/AP
Það var ótrúlegur endakaflinn í leik Sacramento Kings og Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í nótt. O.J. Mayo hélt að hann hefði tryggt Memphis 98-97 sigur með frábærri körfu 1,5 sekúndum fyrir leikslok en Tyreke Evans átti lokaorðið þegar hann skoraði sigurkörfuna með sannkölluðu kraftaverkaskoti frá miðju. Það má sjá þessar síðustu fimm sekúndur leiksins með því að smella hér en það er nokkuð öruggt að þetta lokaskot verður fastagestur í öllum tilþrifapökkum þegar þetta NBA-tímabil verður gert upp. „Ég held að ég sé bestur í liðinu í því að skjóta frá miðju. Við æfðum okkur aðeins í þessu á skotæfingu í morgun og ég þakka fyrir það. Skotið leit vel út en ég trúði því ekki að það væri að fara í körfuna fyrr en að boltinn fór í gegnum netið," sagði Tyreke Evans eftir leikinn. Þetta var fyrsti sigur Sacramento Kings liðsins í níu leikjum en liðið er áfram með slakasta árangurinn í deildinni. Hver veit nema svona sigur kveiki í liðinu og þá sérstaklega Tyreke Evans, sem var valinn nýliði ársins í fyrra en hefur ekki fundið sig eins vel í vetur.
NBA Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Körfubolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira