Lakers vann fyrsta leikinn í Boston Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. júní 2010 09:00 Derek Fisher fagnar sigrinum í nótt. Mynd/AP
LA Lakers hefur tekið forystuna á ný í úrslitaeinvíginu geegn Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta. Liðin mættust í þriðja leik rimmunnar í nótt og þeim fyrsta í Boston. Lakers vann góðan sjö stiga sigur, 91-84, og þar með 2-1 forystu í úrslitaeinvíginu. Boston byrjaði betur í leiknum og náði sjö stiga forystu eftir aðeins þrjár mínútur. En í stað þess að gefast einfaldlega upp náði Lakers að koma sér fljótt inn í leikinn á ný og var munurinn orðinn níu stig í lok fyrsta leikhlutans, 26-17. Lakers missti aldrei forystuna eftir þetta en Boston náði reyndar að minnka muninn í eitt stig í fjórða leikhluta og voru lokamínúturnar nokkuð spennandi. Það var svo Derek Fisher sem í raun kláraði leikinn þegar tæp mínúta var til leiksloka með því að keyra upp að körfunni, skora og næla sér í víti þar að auki. Kobe Bryant skoraði 29 stig fyrir Lakers og Fisher var með sextán. Pau Gasol var með þrettán stig og tíu fráköst. Hjá Boston var Kevin Garnett stigahæstur með 25 stig en Paul Pierce skoraði fimmtán. Glen Davis skoraði tólf stig og Rajon Rondo ellefu. Ray Allen, sem setti met í síðasta leik með því að setja niður átta þrista úr ellefu tilraunum, skoraði aðeins tvö stig í leiknum í nótt og klúðraði öllum þrettán skotum sínum utan af velli. Hann nýtti þó bæði vítaköstin sem hann fékk. Næsti leikur fer fram á fimmtudagskvöldið.
NBA Mest lesið John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Fótbolti Einn sá besti færir sig um set Sport Fleiri fréttir Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Sjá meira