Atlaga að mannréttindum Þorgrímur Sigmundsson skrifar 4. október 2010 15:56 Í upphafi þessa bréfs vil ég biðjast afsökunar á því að það kann að vera harðorðara en títt er með slík bréfkorn. Og ég afsaka mig með því að þær tilfinningar sem stuðla að skrifum þessum eru svo gífurleg reiði og sorg yfir skammsýni ráðamanna að engu tali tekur. Og nú er mælirinn fullur. Ekki aðeins hafa núverandi stjórnvöld hreinlega staðið í vegi fyrir því að við íbúar í Þingeyjarsýslum getum nýtt auðlindir okkar til að efla okkar samfélag. Heldur bæta þau (stjórnvöld) um betur og hyggjast fremja hryðjuverk á nánast heilum landshluta með því að skera niður framlög til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga um 40%. Þessi gjörningur ef af verður er með slíkum ólíkindum að maður spyr sig hvort ráðamenn gangi einfaldlega heilir til skógar? Hvað halda menn að verði um allt það góða starfsfólk HÞ sem missa vinnuna? Jú ríkið þarf áfram að greiða þeim framfærslu en nú í formi atvinnuleysisbóta sem án vafa mun fæstum þeirra duga til framfærslu og því greiðsluvandi líklega á næsta leiti. Sem aftur getur kallað á aðkomu félagsþjónustu en þar á að skera niður líka. Þá er hér ónefnd sú staða sem hinn almenni íbúi svæðisins er í. Að þurfa að sækja heilbrigðisþjónustu, jafnvel neyðarþjónustu, um langan veg þar sem yfir fjallvegi er að fara á vetrum jafnvel 3-4 klukkutíma ferð. Slíkt er brot á mannréttindum og alls ekki í samræmi við það sem boðað var eða er einhver búinn að gleyma tuggu Steimgríms J Sigfússonar um norrænt velferðarríki? Nú er það svo að við hér í þingeyjarsýslum höfum lengi beðið eftir leyfi til að bjarga okkur sjálf en ekki fengið annað en innantóm loforð um stórfellda atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Sér er nú hver uppbyggingin. Og hver verður svo sparnaðurinn þegar upp er staðið ? Gerir línurit fjárlagafrumvarpsins ráð fyrir þessari miklu aukningu á atvinnuleysisskránni og þess hvað það kostar samfélagið þegar fólk getur ekki staðið í skilum vegna forsendubrests eða hvað það kostar að sækja þessa þjónustu um langan veg? Þá hefur ekki verið minnst á aukinn kostnað í geðheilbrigðisþjónustu á svæðinu sem kann að vera þessu samfara. Ég spyr því aftur ganga þessir menn heilir til skógar ? Fyrir aðeins fáum dögum síðan samþykkti Alþingi Íslendinga ákærur á hendur fyrrverandi forsætisráðherra m.a. fyrir vanrækslu í enbættistörfum hans. Ég spyr í fullri alvöru í ljósi þessa hvort ekki geti verið ástæða til að kæra núverandi stjónvöld fyrir vísvitandi brot á jafnræðisreglu stjórnarskrár Íslands ? Og ég spyr og vil fá svör. Hve mörg sendiráð þyrfti að leggja niður til að hægt yrði að halda uppi lítið breyttri þjónustu HÞ? Hve mikið þarf að ganga á áður en þingeyingar fá að nýta orku svæðisins sér og landsmönnum öllum til heilla? Hve mikill er kostnaður hins opinbera vegna listamannalauna? Ef þessar spurningar undiritaðs yrðu settar saman í eina spurningu þá gæti hún hljóðað svona: Er þetta sú forgangsröðun og það norræna velferðarsamfélag sem ríkisstjórnin stendur fyrir? Ég skora á þingmenn kjördæmisins sem og þingeyinga alla að láta í sér heyra og koma í veg fyrir að skammsýni og heimska ráðamanna verði til þess að óafturkræf hryðjuverk verði framin í Þingeyjarsýslum á sama tíma og heimamenn fá ekki að nýta auðlindir svæðisins til sjálfshjálpar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir Skoðun Skoðun Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar