Innlent

Bretar vildu „refsa" íslenskum stjórnvöldum

Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta og félagar hans í ríkisstjórninni vildu refsa Íslendingum.
Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta og félagar hans í ríkisstjórninni vildu refsa Íslendingum.
Íslensk stjórnvöld hefðu átt að útskýra neyðarlögin betur fyrir breskum og hollenskum stjórnvöldum strax við lokun markaða þann 6. október 2008. Þetta er mat rannsóknarnefndar Alþingis sem telur það gagnrýnisvert hversu lítið íslensk stjórnvöld aðhöfðust til að róa þarlenda ráðamenn.

Fram kemur í skýrslu nefndarinnar að vart sé hægt að draga aðra ályktun af skýringum breskra ráðamanna að með beitingu hryðjuverkalaga hafi ætlunin verið að „refsa" íslenskum stjórnvöldum.

Nefndin telur ennfremur að Bretar hafi litið svo á að gjörðir íslenskra stjórnvalda hafi ekki verið í samræmi við yfirlýsingar um að Íslendingar myndu standa við sínar skuldbindingar.

„Rannsóknarnefndin telur það gagnrýnisvert að íslensk stjórnvöld skuli ekki hafa sinnt því að útskýra með skýrari hætti fyrir breskum stjórnvöldum hver afstaða íslenskra stjórnvalda væri gagnvart skuldbindingum Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta þótt eftir því væri leitað."

Þá segir ennfremur: „Þá vanræktu íslensk stjórnvöld einnig að útskýra bæði forsendur og hina pólitísku stefnu sem tekin var með neyðarlögunum fyrir breskum og hollenskum stjórnvöldum. Telur rannsóknarnefnd Alþingis að íslenskum stjórnvöldum hafi að lágmarki borið að fela utanríkisþjónustunni að útskýra meginsjónarmið sín fyrir þeim eftir lokun markaða 6. október 2008 þegar frumvarpið var lagt fyrir Alþingi, úr því ráðherrar ákváðu að ræða ekki milliliðalaust við ráðamenn þeirra ríkja þar sem íslensku bankarnir voru umsvifamestir. Sérstaklega var þetta brýnt gagnvart breskum og hollenskum ráðamönnum. Það var til þess fallið að hleypa aukinni hörku í samskipti þjóðanna að íslensk stjórnvöld létu þetta undir höfuð leggjast."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×