Enski boltinn

Stoke náði jafntefli gegn Man. City

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Adebayor fagnar með Wright-Phillips.
Adebayor fagnar með Wright-Phillips.

Manchester City og Stoke City þurfa að mætast á nýjan leik í enska bikarnum þar sem að liðin gerðu jafntefli, 1-1, í Manchester.

Shaun Wright-Phillips kom Man. City yfir á 11. mínútu en Ricardo Fuller jafnaði fyrir Stoke í þeim síðari.

Þar við sat og liðin þurfa því að mætast að nýju á Britannia-vellinum þar sem leikið verður til þrautar um sætið í átta liða úrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×