Enginn sérsamningur við Sigurð Einarsson 18. ágúst 2010 18:34 Sigurður Einarsson.
Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, var eftirlýstur af Interpol frá 11. maí síðastliðnum og þar til í gær en þá var handtökuskipunin tekin út af vefsíðu Interpol. Hann hafði ekki sinnt kvaðningu sérstaks saksóknara um að mæta í yfirheyrslur. Sigurður neitaði að koma til landsins nema gegn því loforði að hann yrði ekki handtekinn en þrír af æðstu stjórnendum Kaupþings voru stuttu áður handteknir, úrskurðaðir í gæsluvarðhald og síðar í farbann ásamt fjórða manni. Þeir eru grunaðir um skjalafals, auðgunarbrot, brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti, þar með talin markaðsmisnotkun og brot gegn hlutafélagalögum. Við þessum brotum getur legið allt að átta ára fangelsi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er ekkert samkomulag milli Sigurðar og sérstaks saksóknara um að hann sleppi við handtökur gerist þess þörf við yfirheyrslur. Ný kvaðning var gefin út í byrjun vikunnar sem Sigurður ákvað að sinna og var handtökuskipunin því afturkölluð í gærkvöldi. Sigurður flaug með áætlunarflugi til landsins í dag og lenti síðdegis. Hann hefur dvalið á heimili sínu í Lundúnum síðustu mánuði og ekki getað farið frá Bretlandi. Hann verður yfirheyrður af sérstökum saksóknara í fyrramálið. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, vildi ekki tjá sig um málið við fréttastofu í dag. Í viðtali við Fréttablaðið í síðustu viku sagði Ólafur Þór að nýjar upplýsingar hefðu komið fram í rannsókninni, málið væri nú orðið stærra og flóknara. Gestur Jónsson, lögmaður Sigurðar vildi ekki tjá sig við fréttastofu og í sama streng tók lögmaður hans í Bretlandi, Ian Burton.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Innlent Flutningabílar fastir á Þröskuldum Innlent Valgarð Már er látinn Innlent Fleiri fréttir „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Sjá meira