Kobe bara með 10 stig en skoraði samt mikilvægustu körfuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. janúar 2010 09:00 Kobe Bryant hvílir sig fyrir lokakaflann í leiknum í nótt. Mynd/AP
Kobe Bryant skoraði úrslitakörfu Los Angeles Lakers á móti Dallas Mavericks í 100-95 sigri meistaranna í NBA-deildinni í nótt. Kobe skoraði körfuna 28 sekúndum fyrir leikslok. Bryant skoraði samt bara 10 stig í leiknum en Andrew Bynum (22 stig, 10 fráköst) Lamar Odom (18 stig, 14 fráköst) og Ron Artest (16 stig, 11 fráköst) voru allir með tvennur. Dirk Nowitzki skoraði 30 stig og varð þar með 34. leikmaðurinn til að skora 20 þúsund stig í NBA-deildinni. Jason Kidd var með 11 stig og 11 fráköst. Paul Pierce var með 24 stig, Ray Allen skoraði 15 stig og Rajon Rondo var með 11 stig og 14 stoðsendingar þegar Boston Celtics vann 111-87 sigur á New Jersey Nets. Yi Jianlian skoraði 19 stig fyrir lélegasta lið deildarinnar. Houston Rockets þurfti þrjár framlengingar til þess að vinna Minnesota Timberwolves. Houston vann leikinn 120-114 þar sem Aaron Brooks var með 43 stig fyrir Rockets-liðið. Al Jefferson skoraði 26 stig fyrir Minnesota og setti félagsmet með því að taka 26 fráköst. Carmelo Anthony skoraði 27 stig og Chauncey Billups var með 24 stig þegar Denver Nuggets vann 115-97 sigur á Orlando Magic. Þetta var fjórði sigur Denver-liðsins í fimm leikjum. Matt Barnes var með 28 stig fyrir Orlando sem lék enn án Vince Carter sem fór úr axlarlið í síðustu viku. Danny Granger (33 stig) og Mike Dunleavy (30) brutu báðir 30 stiga múrinn í 122-114 sigri Indiana Pacers á Phoenix Suns. Amare Stoudemire var með 21 stig hjá Phoenix og Steve Nash skoraði 20 stig og gaf 9 stoðsendingar auk þess að fá sjö spora skurð í vörina eftir olnbogaskot. Joe Johnson var með 24 stig í 94-82 sigri Atlanta Hawks á Washington Wizards. Antawn Jamison skoraði 25 stig fyrir Wizards-liðið. Þetta var þriðji sigur Atlanta í röð. Chris Paul var með 15 stig og 15 stoðsendingar þegar New Orleans Hornets vann 108-94 sigur á Los Angeles Clippers en þetta var sjöundi sigur liðsins í síðustu átta leikjum. Baron Davis skoraði 19 stig fyrir Clippers. Brandon Roy var með 22 stig í 120-108 sigri Portland Trailblazers á Milwaukee Bucks. Ersan Ilyasova skoraði 24 stig fyrir Milwaukee. Dwyane Wade lét ekki meiðsli á úlnlið hafa áhrif á sig og var með 35 stig í 115-102 sigri Miami Heat á Golden State Warriors. Jermaine O'Neal var með 24 stig fyrir Miami en Corey Maggette (25 stig) og Anthony Morrow (24) voru atkvæðamestir hjá Golden State. Richard Jefferson tryggði San Antonio Spurs 109-108 sigur á Oklahoma City Thunder í framlengdum leik. Nýliðinn DeJuan Blair var með 28 stig og 21 frákast fyrir Spurs en hjá Thunder skoraði Kevin Durant 35 stig og Russell Westbrook var með 25 stig og 13 stoðsendingar. David Lee tryggði New York Knicks 93-92 sigur á Philadelphia 76ers en hann var með 24 stig í leiknum. Allen Iverson skoraði 16 stig fyrir Sixers.
NBA Mest lesið Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Stelpurnar okkar mættar í paradísina Fótbolti Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Fótbolti Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM Fótbolti Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Formúla 1 Chelsea áfram eftir tveggja klukkutíma töf og framlengingu Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti Fyrstu peningaverðlaunin á ferlinum Sport Fleiri fréttir Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Sjá meira