„Þegar eftirlitið vantar“ Lúðvíg Lárusson skrifar 24. september 2010 06:00 Kveikjan að greininni er vegna skýrslunnar um vistheimilin að Jaðri, Silungapolli og Reykjahlíð. Brynja, fréttakona Kastljóssins, ræddi við Rósu Ólöfu um dvöl hennar í Reykjahlíð og spurði hvernig hún telji stöðuna í dag. Rósa Ólöf svaraði að vegna fátæktar eru börn enn í dag látin axla ábyrgð langt umfram getu sína. Enn má spyrja hvort ofbeldi, kynferðislegt sem andlegt sé enn við lýði í dag. Sagan segir að ákveðin brotalöm hefur verið í samfélaginu sem veldur skelfilegum hörmungum aftur og aftur. Samnefnarinn er agaleysi og ófullnægjandi eftirlit. Undanfarið má nefna nokkur atriði sem bera þennan samnefnara eins og örlög drengjanna á Breiðavíkurheimilinu, efnahagshrunið, aðdragandi og afleiðingar þess þar sem lykilstofnanir hafi brugðizt skyldum sínum eins og Fjármálaeftirlitið, Seðlabankinn. Þingmenn flýja örlög landsdómsins. Ætla þeir þá að nýta hefðbundna ákæruleið í staðinn? Samnefnarinn þarf að vera opinbert regluverk sem skilgreinir hin nauðsynlegu úrræði til að afstýra mistökum og hörmungum af mannlegu eðli. Augljóst er að þar sem börn eru án nægilegs eftirlits, þar er aukin hætta á misnotkun. Einn af rómversku keisurunum laugaði sig oft með litlum drengjum sem hann kallaði „fiskana" sína. Sama gildir um fé sem er án hirðis þar eru freistingarnar miklar, fáar reglur, ójafnvægi í valdahlutföllum stofnana sem eiga að gæta og vera gætt. Það hafa verið gerðar nokkrar skýrslur nýlega um misþyrmingar og vanrækslu á börnum og misbeitingu valds í stjórnun efnahagsmála. Hér verður ljóst að hið raunverulega og virka eftirlit vantar en hvenær kemur það? Skilgreina þarf hvaða áhættuþættir hindra að börn á vistheimilum og eigin heimilum njóti alltaf fullrar verndar og fylgja þeim eftir með virku eftirliti. Til samanburðar um virkt eftirlit má nefna hið alþjóða flugöryggi og þá vinnu sem er lögð í það. Hér hafa yfirvöld valið að leggja þrotlausa vinnu í að auka öryggi á öllum sviðum allt frá flugvélaframleiðslu til daglegs flugrekstrar. Í Bandaríkjunum einum eru yfir nítján þúsund farþegaflug daglega og líkurnar á að lenda í flugslysi þarf viðkomandi að vera yfir 90 ár samfleytt á flugi. Væri farþegaflug við lýði ef íslenzka fjármálaöryggið og vernd barna gilti? Kjarninn er sá að þeir sem bera ábyrgð í hvaða máli sem er verða að hafa siðferðilegt þrek til að axla hana og koma á fullkomnu eftirliti með áhættuþáttum. Þannig myndi svarið til Brynju fréttakonu vera að ef skýrt, opið og fullkomið eftirlit sé með högum barna þá séu málin komin í lag en annars ekki. Höfum við þrek til að gera betur? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar