Lund sér ekki eftir því að hafa farið til Löwen Henry Birgir Gunnarsson skrifar 1. desember 2010 18:45 Lund í búningi Löwen.
Norðmaðurinn Børge Lund mun mæta sínum fyrrum félögum í kvöld þegar Rhein-Neckar Löwen tekur á móti Kiel í risaleik kvöldsins í þýska handboltanum. Lund lék með Kiel fram á síðasta sumar og vann þrjá meistaratitla með félaginu. Lund tók við leikstjórnandastöðunni hjá Löwen af Snorra Steini Guðjónssyni sem fór yfir til AGK í Danmörku. Það er allt undir hjá Löwen í kvöld en tapi liðið er endanlega ljóst að það mun ekki eiga möguleika á þýska meistaratitlinum. Vinni liðið aftur á móti leikinn hangir það enn í toppbaráttunni. Þetta er þriðji leikur liðanna á skömmum tíma. Kiel vann fyrsta leikinn og annar leikurinn endaði með jafntefli. Löwen hefur verið að ná góðum stöðum í stóru leikjunum en lent í því að tapa niður góðu forskoti og jafnvel tapa leikjum. Það hefur reynst dýrt. Lund í leik með Kiel. "Úrslitin eru ekki góð. Við hefðum getað unnið í Flensburg og Hamburg en gerðum það ekki. Við erum því alls ekki sáttir. Ég veit ekki hvað er að klikka hjá okkur á lokamínútunum. Við erum að vinna í þessu og vonandi fara hlutirnir að smella hjá okkur," sagði Lund sem er ánægður í herbúðum Löwen. "Ég er ótrúlega ánægður hérna. Það er frábært að spila með svona góðu liði sem getur unnið titla. Það er verið að setja saman nýtt lið en það hefur gengið vonum framar. Ég kom hingað til þess að fá að spila meiri sóknarleik og er sáttur." Leikurinn í kvöld fer fram í hinni glæsilegu SAP-Arena. Uppselt er á leikinn en 13 þúsund manns verða í húsinu. Leikurinn er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 19.45.
Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Coutinho og Neymar sameinaðir á ný Fótbolti VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Enski boltinn Leedsarar léku sér að Newcastle Enski boltinn „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Losa Leonard eftir refsinguna Körfubolti Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Baldvin setti metið á EM meiddur og er hættur við HM Sport Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira