Rhein-Neckar Löwen vann þriggja marka sigur á Kiel í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2010 21:22 Guðmundur Guðmundsson vann sigur á Alfreð Gíslasyni í kvöld. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Rhein-Neckar Löwen, lið Guðmundar Guðmundssonar, vann þriggja marka sigur á Kiel, liði Alfreðs Gíslasonar, 29-26, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ólafur Stefánsson og Aron Pálmarsson áttu báðir góðan leik í kvöld, Ólafur var frábær í seinni hálfleik en Aron átti sviðið í þeim fyrri. Ólafur Stefánsson skoraði þrjú mörk fyrir Rhein-Neckar Löwen og Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark. Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk fyrir Kiel og komu þau öll í fyrri hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson kom inn á í liði Rhein-Neckar Löwenen á lokamínútunum en hann er að koma til baka eftir erfið hnémeiðsli. Þetta var þriðji og síðasti leikurinn í þríleik liða þeirra Alfreðs Gíslasonar og Guðmundar Guðmundssonar á aðeins ellefu dögum. Fyrstu tveir leikirnir voru í Meistaradeildinni en leikurinn í gær var í þýsku úrvalsdeildinni. Kiel vann fyrsta leikinn 30-27 eftir að hafa náð mest níu marka forystu en liðin skildu síðan jöfn 30-30 í síðasta leik þar sem Kiel stal stiginu með því að skora þrjú síðustu mörkin.Mynd/Nordic Photos/BongartsRhein-Neckar Löwen var með frumkvæðið stærsta hluta leiksins, var með eins marks forskot í hálfleik, 15-14, og náði mest sex marka forskoti í seinni hálfeik. Sigur liðsins var aldrei í mikill hættu í seinni hálfeiknum. Kiel tapaði þarna mikilvægum stigum í toppbaráttunni en Rhein-Neckar Löwen náði að enda tveggja taphrinu sína í deildinni með glæsilegum sigri. Kiel er nú fjórum stigum á eftir toppliði HSV Hamburg en Rhein-Neckar Löwen er síðan einu stigi á eftir Kiel.
Mest lesið Ögrandi herferð Sweeney gagnrýnd: „Get ekki lýst því hvað ég er reið“ Sport Haaland segir Hjörvari að hann hafi ekki verið rangstæður Enski boltinn Missti eins árs gamlan son sinn Handbolti Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Enski boltinn Fámáll um orðrómana Íslenski boltinn „Hræddur um að Höddi Magg hafi fengið hland fyrir hjartað“ Íslenski boltinn Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Enski boltinn Uppgjörið: Fylkir - HK 2-2 | Þrjú rauð spjöld og Fylkir í úrslit Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Íslenski boltinn Stórmerkileg byrjun Freys hjá Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Fullkomin skotnýting Bjarka Más í spennutrylli Meistaradeildin spiluð með nýju fyrirkomulagi Guðjón Valur með augastað á landsliðsmanni Íslands ÍBV hreppir Magnús Dag frá KA „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Tveir nýliðar í landsliðshópnum Hættur hjá danska landsliðinu eftir samskipti við unga leikmenn Freyr frábær í stórsigri á ÍBV Sjá meira