Jón Sigurðsson: Ég hef engin lög brotið 30. apríl 2010 20:09 „Ég mótmæli því harðlega hinum alvarlegu ásökunum skattrannsóknarstjóra - ég hef engin lög brotið."
Skattrannsóknarstjóri krafðist í gær kyrrsetningar á eignum Jóns Sigurðssonar framkvæmdastjóra Stoða um leið og gerð var krafa um kyrrsetningu á eignum félagsins. Í yfirlýsingu frá Jóni segir að rök skattrannsóknarstjóra hafi verið þau að nauðsynlegt hafi verið að kyrrsetja eignir hans til tryggingar fyrir hugsanlegri fésekt vegna meintrar refsiverðrar háttsemi hans í tengslum við skil Stoða á virðisaukaskatti. Kyrrsetningarbeiðnin byggir á því að félagið sé talið hafa vanframtalið virðisaukaskatt af aðkeyptri þjónustu erlendis frá á árunum 2005 til 2007. „Mér er þar gefið að sök að hafa staðið skil á efnislega röngum virðisaukaskattsskýrslum fyrir hönd félagsins," segir í yfirlýsingu Jóns en tekur hann fram að hann hafi tekið við forstjórastarfinu hjá Stoðum í desember 2007 og því var hann stjórnandi félagsins í 27 daga þess þriggja ára tímabils sem um ræðir. Hann segist enga beina aðkomu hafa haft að virðisaukaskattskílum fyrir félagið og enga persónulega hagsmuni haft af því hvernig virðisaukaskattskilum félagsins var háttað. Jón segist enga ástæðu hafa haft til að efast um hvort skattskil félagsins væru í samræmi við lög og reglur og segist hann leyfa sér að fullyrða að engum starfsmönnum né yfirmönnum félagsins hafi nokkurn tíma gengið til að komast hjá greiðslu virðisaukaskatts. „Ég mótmæli því harðlega hinum alvarlegu ásökunum skattrannsóknarstjóra - ég hef engin lög brotið." Færði fasteignir aftur á sitt nafn „Mín bíður nú það verk að hreinsa mannorð mitt. Fyrsta skrefið á þeirri leið, að því gefnu að kyrrsetning eigna minna gangi efti, er að kæra þessa málsmeðferð skattayfirvalda til Héraðsdóms Reykjavíkur."
Tengdar fréttir Farið fram á kyrrsetningu á eignum Stoða Krafa Tollstjóra um kyrrsetningu eigna Stoða var tekin fyrir hjá Sýslumanninum í Reykjavík í gær. Í tilkynningu frá Stoðum segir að skattrannsóknarstjóri hafi farið fram á kyrrsetningu eigna að upphæð 650 milljónir króna vegna fyrirhugaðrar endurákvörðunar skatta félagsins vegna rekstaráranna 2005-2007. „Stoðir framvísuðu við fyrirtökuna fullnægjandi tryggingum fyrir samsvarandi upphæð í formi reiðufjár, með fyrirvara um lögmæti aðfararinnar,“ segir í tilkynningunni en Stoðir munu krefjast þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að kyrrsetningarbeiðninni verði synjað. 30. apríl 2010 17:36 Mest lesið Alvöru inniveður um helgina Innlent Segir Kúbu brátt munu falla Erlent Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Innlent Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Innlent Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Innlent Listamönnum fækkar ört Innlent Hvalfjarðargöng lokuð Innlent Enn frekari dráttur á máli Margrétar Innlent Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Innlent Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Innlent Fleiri fréttir Tveir grunaðir um stórfellda líkamsárás í miðbænum Segir hvorki Jesú, Múhameð né Þór hafna yfir lög Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Listamönnum fækkar ört Alvöru inniveður um helgina Kristinn hafði betur gegn Alexöndru og verður oddviti Pírata Selfosskirkja 70 ára og kirkjukórinn 80 ára Kjartan og Marta til liðs við Miðflokkinn Útiloka að þjóðaratkvæðagreiðslan fái hraða afgreiðslu Rætt við stjórnarandstöðuna um atkvæðagreiðslu um ESB Truflanir víða vegna eldingaveðurs Hvalfjarðargöng lokuð Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku Ríkisstjórnin feli aðgerðaleysi á bak við atkvæðagreiðsluna Enn frekari dráttur á máli Margrétar „Verið að vaða áfram með æðibunugangi“ Rafmagnslaust vegna eldingar Jakob Bjarnar, Kjartan og Sunna tilnefnd til blaðamannaverðlauna Bráðabirgðaráðstafnir í Reynisfjöru: Nýr útsýnispallur rís í vor Mál Margrétar flutt á ný vegna dráttar Bjarki lætur staðar numið í Dalabyggð Ísland sé í sterkari stöðu en áður fyrir aðildarviðræður Alvarlegt umferðarslys við Munaðarnes Bein útsending: Staða loftlagsrannsókna á Íslandi Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst Kynna þjóðaratkvæði um framhald viðræðna Bein útsending: Kynna tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Kynna tillöguna um þjóðaratkvæðagreiðsluna klukkan 11:30 „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Sjá meira
Farið fram á kyrrsetningu á eignum Stoða Krafa Tollstjóra um kyrrsetningu eigna Stoða var tekin fyrir hjá Sýslumanninum í Reykjavík í gær. Í tilkynningu frá Stoðum segir að skattrannsóknarstjóri hafi farið fram á kyrrsetningu eigna að upphæð 650 milljónir króna vegna fyrirhugaðrar endurákvörðunar skatta félagsins vegna rekstaráranna 2005-2007. „Stoðir framvísuðu við fyrirtökuna fullnægjandi tryggingum fyrir samsvarandi upphæð í formi reiðufjár, með fyrirvara um lögmæti aðfararinnar,“ segir í tilkynningunni en Stoðir munu krefjast þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að kyrrsetningarbeiðninni verði synjað. 30. apríl 2010 17:36