Stjórnlagaþing meira en 200 milljóna króna virði 8. október 2010 06:00 Eftir örfáar vikur fara fram kosningar til stjórnlagaþings. Margir hafa deilt um kosti og galla þess. En hvað er þetta stjórnlagaþing og til hvers er það? Jú, stjórnlagaþing á að koma saman þann 15. febrúar nk. og starfa í tvo til fjóra mánuði í lotum. Það besta er að allir mega bjóða sig fram, og ef þú nærð kjöri verður atvinnurekandinn þinn að gefa þér frí. Svo er bónusinn að þú nýtur sömu launa og kjara eins og þú sért Alþingismaður. Stjórnlagaþingið ætlar að taka fyrir íslensku stjórnarskrána, sem er í sjö köflum. Stjórnlagaþingið ætlar að fjalla um kosningar, forsetann, þingmenn, já, og ráðherraábyrgð, dómstólana svo ekki sé minnst á mannréttindin. Það eru margir sem halda að eingöngu lögfræðingar og stjórnsýslufræðingar megi gefa kost á sér. Ég segi bara, það er rangur misskilningur eins og einn færeyingur orðaði það svo skemmtilega. Allir mega gefa kost á sér til Stjórnlagaþingsins. Allir þeir sem eru orðnir 18 ára og eru ekki þingmenn, varaþingmenn eða dómarar. Að mínu mati skiptir miklu máli að þetta þing fái tækifæri til þess að fjalla um sjálfa stjórnarskrána. Enda plagg síðan á 19. öld. Á stjórnlagaþinginu eiga 25 til 31 einstaklingur að skiptast á skoðunum um ráðherraábyrgð, Ísland eitt kjördæmi, þingrof og mannréttindi. Svo ekki sé minnst á forsetaembættið á það að vera til áfram eða á það að víkja, svo eitthvað sé nefnt. Ef ég væri stjórnlagaþingmaður þá myndi ég beita mér fyrir því að hafa mannréttindakaflann sem fyrsta kaflann í stjórnarskránni, en ekki í síðasta kaflanum líkt og hann er í dag. Ég hvet þá sem ætla að gefa kost á sér að beita sér fyrir þessu. Framboðsfrestur er til 18. október. Við Íslendingar höfum allt að vinna og engu að tapa. Ég minni á að kosningarnar eru persónukosningar. Svo ekki þarf að kjósa flokka eða hópa. Loksins, loksins fær almenningur að kjósa fólk. Svo verður Ísland eitt kjördæmi. Þannig að Gunna á Akureyri getur kosið Jón á Selfossi. Ég hef fulla trú á því að ný stjórnarskrá sameini okkur sem eina þjóð á ný og færi þjóðinni nýja og bjartari tíma. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran Skoðun Skoðun Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ég þekki ekki lengur minn gamla Sjálfstæðisflokk Dagur Jónsson skrifar Skoðun Leggjum þá Náttúruverndarstofnun niður Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Meðferð ríkisvaldsins á máli lífslokalæknisins Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar Skoðun Með óttann einan að vopni Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun Merkilegur tvískinnungur Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Þjóðin á að njóta vafans Snorri Másson skrifar Skoðun Tosca skýst upp úr turninum í Brussel Jónas Sen skrifar Skoðun ESB og skoðanabræður þínir Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Litblindur á fótboltavellinum Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindarskrif Halldórs Jörgen Olesen Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslands-Lúpínan Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Afvegaleiðingum og rangfærslum Gauta svarað Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Áhættumat í röngum höndum Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar Sjá meira
Eftir örfáar vikur fara fram kosningar til stjórnlagaþings. Margir hafa deilt um kosti og galla þess. En hvað er þetta stjórnlagaþing og til hvers er það? Jú, stjórnlagaþing á að koma saman þann 15. febrúar nk. og starfa í tvo til fjóra mánuði í lotum. Það besta er að allir mega bjóða sig fram, og ef þú nærð kjöri verður atvinnurekandinn þinn að gefa þér frí. Svo er bónusinn að þú nýtur sömu launa og kjara eins og þú sért Alþingismaður. Stjórnlagaþingið ætlar að taka fyrir íslensku stjórnarskrána, sem er í sjö köflum. Stjórnlagaþingið ætlar að fjalla um kosningar, forsetann, þingmenn, já, og ráðherraábyrgð, dómstólana svo ekki sé minnst á mannréttindin. Það eru margir sem halda að eingöngu lögfræðingar og stjórnsýslufræðingar megi gefa kost á sér. Ég segi bara, það er rangur misskilningur eins og einn færeyingur orðaði það svo skemmtilega. Allir mega gefa kost á sér til Stjórnlagaþingsins. Allir þeir sem eru orðnir 18 ára og eru ekki þingmenn, varaþingmenn eða dómarar. Að mínu mati skiptir miklu máli að þetta þing fái tækifæri til þess að fjalla um sjálfa stjórnarskrána. Enda plagg síðan á 19. öld. Á stjórnlagaþinginu eiga 25 til 31 einstaklingur að skiptast á skoðunum um ráðherraábyrgð, Ísland eitt kjördæmi, þingrof og mannréttindi. Svo ekki sé minnst á forsetaembættið á það að vera til áfram eða á það að víkja, svo eitthvað sé nefnt. Ef ég væri stjórnlagaþingmaður þá myndi ég beita mér fyrir því að hafa mannréttindakaflann sem fyrsta kaflann í stjórnarskránni, en ekki í síðasta kaflanum líkt og hann er í dag. Ég hvet þá sem ætla að gefa kost á sér að beita sér fyrir þessu. Framboðsfrestur er til 18. október. Við Íslendingar höfum allt að vinna og engu að tapa. Ég minni á að kosningarnar eru persónukosningar. Svo ekki þarf að kjósa flokka eða hópa. Loksins, loksins fær almenningur að kjósa fólk. Svo verður Ísland eitt kjördæmi. Þannig að Gunna á Akureyri getur kosið Jón á Selfossi. Ég hef fulla trú á því að ný stjórnarskrá sameini okkur sem eina þjóð á ný og færi þjóðinni nýja og bjartari tíma.
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullarsokka Grímur Atlason skrifar
Skoðun Hjá LESA skrifum við sögurnar sjálf og höfundar eiga alltaf að fá greitt Birgir Hrafn Birgisson skrifar
Skoðun Á hugmyndafræðilegt ofbeldi heima í kosningabaráttu? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Hvað er dýrmætara en rétturinn og valdið til að ráða okkar málum sjálf? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Ábyrgð Ríkisstjórnar Íslands áður en aðildarviðræður við ESB hefjast Eggert Guðmundsson skrifar