EM kvenna:Gestgjafarnir mætast í undanúrslitum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. desember 2010 21:24 Yfirburðir Norðmanna í dag voru ótrúlegir. Nordic Photos / AFP
Eftir úrslit dagsins á EM í handbolta er ljóst að gestgjafaþjóðirnar báðar, Danmörk og Noregur, mætast í undanúrslitum EM í handbolta á laugardaginn. Evrópumeistaramótið hefur farið fram þessum löndum síðustu dagana en úrslitahelgin fer fram í Herning á Jótlandi. Keppni í Milliriðli 2 lauk í Lillehammer í Noregi í dag og voru úrslitin öll eftir bókinni. Svíþjóð og Noregur voru nánast örugg með efstu tvö sæti riðilsins, og þar með sæti í undanúrslitunum, og unnu báða sína leiki í dag. Svíar lögðu Ungverja, 24-19, og Norðmenn slátruðu Hollendingum, 35-13. Frakkar tryggðu sér þriðja sæti riðilsins með sigri á Úkraínu, 31-19. Bæði lið fengu átta stig en þar sem að Svíar unnu nokkuð óvæntan sigur í innbyrðisviðureign liðanna fara þeir áfram sem sigurvegarar og mæta Rúmenum í undanúrslitunum á laugardaginn. Danir eru búnir að tryggja sér sigri í Milliriðli 1 þrátt fyrir að lokaumferðin eigi enn eftir að fara fram. Rúmenar eru að sama skapi öruggir með annað sæti riðilsins. Það má búast við hörkuviðureignum á laugardaginn, þá sérstaklega rimmu gestgjafanna. Danmörk er eina ósigraða lið keppninnar en Norðmenn hafa unnið fimm af sex leikjum sínum til þessa í keppninni með gríðarlegum yfirburðum, samtals 166 mörkum gegn 83. Sem þýðir að í sínum sigurleikjum hafa Norðmenn skorað tvöfalt fleiri mörk en andstæðingar sínir að meðaltali. Tap liðsins fyrir Svíþjóð var að vísu óvænt en nokkuð var um veikindi í leikmannahópi Noregs þá. Danir hafa einnig verið afar sannfærandi í sínum leikjum án þess þó að hafa unnið sínar viðureignir jafn sannfærandi og Norðmenn.Evrópumeistarakeppni kvenna í handknattleik fór fyrst fram árið 1994 og frá þeim tíma hafa aðeins þrjár þjóðir sigrað. 1994: Gull Danmörk, silfur Þýskaland, Noregur 1996: Gull Danmörk, Noregur, Austurríki 1998: Gull Noregur, Danmörk, Ungverjaland 2000: Gull Ungverjaland, Úkraína, Rússland 2002: Gull Danmörk, Noregur, Frakkland 2004: Gull Noregur, Danmörk, Ungverjaland 2006: Gull Noregur, Rússland, Frakkland 2008: Gull Noregur, Spánn, Rússland
Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Íslenski boltinn Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Stútfullur laugardagur Sport Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Hver sigrar Puffin-hlaupið? Sport Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Fleiri fréttir Haukur allt í öllu hjá Löwen Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Þrettán frá Gidsel en Bjarki og félagar fögnuðu Gríðarlegt áfall ÍBV fyrir úrslitin Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Sjá meira