Meðferðarheimili og löggjöfin 23. september 2010 06:00 Vegna þess sem komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarið um að eftirspurn eftir plássum á meðferðarheimilum væri minni en framboð og MST-meðferðarkerfið talið vera m.a. skýring á því, er nauðsynlegt að opna aðeins inn á þá umræðu hér. Til að byrja með er vert að benda á það að það eru engan veginn öll börn eða unglingar sem geta nýtt sér MST og MST leysir ekki af hólmi nauðsyn þess að góð meðferðarheimili séu til staðar. Samkvæmt rannsóknum í Noregi á MST kom fram að þrátt fyrir jákvæð áhrif MST hefur stofnunum/meðferðarheimilum ekki fækkað hjá þeim. Einnig eru þessar upplýsingar fjölmiðla áhugaverðar í ljósi þess að undirrituð hefur vitneskju um unglinga sem eiga sér engan samastað vegna flókins samspils erfiðleika sem hrjá þá og engin viðunandi meðferðarúrræði virðast vera í boði fyrir þau eins og okkur þó ber lagaskylda til að veita þeim. Í þessu samhengi má einnig geta þess að á skömmum tíma hefur tveimur meðferðarheimilum á vegum ríkisins undir eftirliti Barnaverndarstofu verið lokað, þ.e. meðferðarheimilunum Árbót og Götusmiðjunni. Árbót var lokað meðal annars vegna þess að starfsmaður heimilisins beitti skjólstæðinga þess kynferðislegu ofbeldi. Götusmiðjunni var lokað meðal annars vegna óviðeigandi hegðunar forstöðumanns heimilisins. Í ljósi þessara atburða vakna margar spurningar: Hvers konar meðferðarheimili erum við að reka? Hvaða kröfur gerum við til starfsfólks meðferðarheimilanna? Er eftirliti með heimilunum ef til vill ábótavant? Rétt er að huga að þeim skyldum sem við höfum til að reka meðferðarheimili. Samkvæmt 1. og 2. mgr. 79. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 er það félagsmálaráðuneytið sem ber ábyrgð á því að heimili og stofnanir séu tiltæk þegar á þarf að halda. Í því felst m.a. að veita börnum sérhæfða meðferð vegna alvarlegra hegðunarerfiðleika, vímuefnaneyslu og meintra afbrota. Síðan er það Barnaverndarstofa í umboði félagsmálaráðuneytis sem annast uppbyggingu og rekstur heimila og stofnana. Barnaverndarstofa er sú stofnun sem skal hafa faglegt og fjárhagslegt eftirlit með starfsemi heimila og stofnana og getur einnig mælt fyrir um tiltekna sérhæfingu þeirra og veitt þeim faglegan stuðning. Í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem við höfum lögfest hér á landi kemur fram í 2. mgr. 3.gr. sáttmálans að aðildarríki skulu sjá til þess að stofnanir þar sem börnum skal veitt umönnun og vernd starfi í samræmi við reglur sem þar til bær stjórnvöld hafa sett, einkum um öryggi, heilsuvernd og fjölda og hæfni starfsmanna, svo og um tilhlýðilega yfirumsjón. Það má velta fyrir sér hvort ekki sé nauðsynlegt að löggjafinn geri strangari kröfur til bæði eftirlits og faglegrar ráðninga starfsmanna á þau meðferðarheimili sem ríkið rekur? Er til dæmis eðlilegt að forstöðumaður meðferðarheimilis eins og í tilviki Götusmiðjunnar sé ófaglærður? Einnig má spyrja sig í Árbótarmálinu af hverju stúlkan sem lét í fyrra skiptið vita af kynferðisafbroti starfsmannsins fengi ekki að njóta vafans og gerður starfslokasamningur við starfsmanninn. Það er skylda ríkisvaldsins samkvæmt barnaverndarlögum gagnvart þeim börnum sem þurfa að vistast á vegum þess njóti í það allra minnsta verndar. Í þessu tilviki var ekki svo og er það algerlega óásættanlegt. Þessi umræða er ekki ný af nálinni en óhjákvæmilega kemur hún aftur upp í hugann þegar Götusmiðjumálið kom til. Það sem er mikilvægast núna er að læra af því sem á undan er gengið og vanda til verka. Það þarf að endurskoða reglur og löggjöf sem um meðferðarheimili gilda. Lögin þurfa að gera strangari kröfur um fagþekkingu innan meðferðarheimila og hafa skilvirkt og þéttara eftirlit með heimilunum. Það getur einfaldlega skipt sköpum fyrir unglinginn að til dæmis starfsmenn séu hæfir til að geta unnið eftir þeim meðferðaráætlunum sem vinna á eftir. Einnig þarf að skoða hvort þjónustusamningar séu rétta leiðin til að reka meðferðarheimilin ef það gerir það að verkum að til dæmis Barnaverndarstofa hafi þá ekki húsbóndavald yfir starfsmönnum heimilisins. Ég hvet almenning til að kynna sér hvaða úrræði eru raunverulega í boði ef þau skyldu verða það óheppin að til dæmis unglingurinn þeirra ætti við alvarlegan hegðunarvanda að stríða eða væri í neyslu. Við stöndum frammi fyrir erfiðum og þungum unglingavandamálum en ef til vill færri en sem, því miður virðast ekki vera til viðunandi úrræði fyrir og nauðsynlegt er að opna umræðuna um þau og hvetja stjórnvöld til aðgerða bæði hvað varðar löggjöf, reglur, eftirlitsaðila og fjármagn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar