Bréfberi tapaði skaðabótamáli eftir hundsbit 24. mars 2010 13:58 Hundur beit bréfbera.
Tæplega fimmtugur bréfberi, sem var bitinn af hundinum Skugga við skyldustörf, tapaði máli í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem hann krafðist þess að eigendur Skugga væru gerðir skaðabótaskyldir vegna árásar hundsins. Þá stefndi hann einnig tryggingafélagi eigendanna. Hundurinn réðst á manninn í mars 2006. Bréfberinn kom að húsi þar sem ung stúlka á heimilinu opnaði fyrir honum og kastaði bréfberinn þá póstinum á gólfið. Svo virðist sem Skuggi hafi túlkað gjarðir bréfberans sem árás og réðist því á hann og beit í vinstri mjöðmina. Þá rifnuðu buxurnar hans við árás Skugga. Bréfberinn heldur því fram að vörslu hundsins hafi verið ábótavant. Þá segir í stefnugerð bréfberans að með því að hafa hundinn lausan við bréfalúgu sé ljóst að hjónin hafi látið sér í léttu rúmi liggja þá hættu sem gæti stafað af honum og hafi þar verið um að ræða saknæma háttsemi og brot á ákvæðum samþykktar um hundahald. Svo segir að bréfberinn hafi verið að sinna starfi sínu sem póstburðarmaður og ekkert í fasi hans eða framkomu hafi á nokkurn hátt verið ógnandi og til þess fallið að réttlæta viðbrögð hundsins og árás hans á bréfberann. Orðrétt segir í niðurstöðu dómsins: „Eftir slysið hefur slasaði fengið einkenni um áfallastreitu þar sem hann endurupplifir slysaatburðinn, dreymir um hann, er mjög hræddur og hvekktur við að sjá hunda, sérstaklega ef þeir koma aftan að honum eða eru stórir." Dómari héraðsdóms tekur ekki undir með bréfberanum að eigendur hundsins séu skaðabótaskyldir í ljósi þess að hann hlaut engan varanlegan líkamlegan skaða af. Aftur á móti er viðurkennt að bréfberinn hafi orðið fyrir „mjög vægri andlegri truflun" eins og það er orðað í dómnum. Varanleg örorka er metin 2 prósent vegna þess. Voru eigendurnir því sýknaðir af skaðabótakröfunni sem og tryggingafélagið.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Sjá meira