Ótrúlegir yfirburðir Norðmanna Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Árósum skrifar 11. desember 2010 15:15 Katrine Lunde Haraldsen er hér fagnað af félögum sínum í norska landsliðinu eftir leikinn í gær. Nordic Photos / AFP
Norska landsliðið vann sinn riðil á EM í handbolta með ótrúlegum yfirburðum og var samtals með 48 mörk í plús í leikjunum þremur í riðlinum. Norðmenn byrjuðu á því að vinna Frakka, sem komust í úrslit HM í fyrra, með ellefu marka mun og svo fóru þeir afskaplega létt með Slóvena, 32-16. Ungverjaland var síðasti mótherjinn og er gamalt stórveldi í kvennahandbolta. En Norðmenn völtuðu yfir Ungverja í gær og unnu með 21 marki, 34-13. Katrine Lunde Haraldsen varði tvöfalt fleiri skot en Ungverjar skoruðu í leiknum og var því með 67 prósenta hlutfallsmarkvörslu. Ótrúlegar tölur sem bera vitni um hversu gríðarlega sterk norska vörnin er. Haraldsen var eðlilega valinn maður leiksins en hún varði tvö af fjórum vítum og í tveimur af fimm hraðaupphlaupum Ungverja. Hún varði svo sautján skot í nítján tilraunum Ungverja af níu metrunum. Norðmenn hafa unnið EM í síðustu þrjú skipti og virðist fátt geta stöðvað þær nú. Þær fara nú með fullt hús stiga í milliriðlakeppnina þar sem Noregur mætir næst liðum Svíþjóðar, Hollands og Úkraínu. Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson er landsliðsþjálfari Noregs eins og kunnugt er.Staðan í milliriðli 2: 1. Noregur 4 stig (+32 í markatölu) 2. Svíþjóð 4 (+15) 3. Holland 2 (+5) 4. Ungverjaland 2 (-18) 5. Frakkland 0 (-14) 6. Úkraína 0 (-20) Liðin taka aðeins með sér í milliriðlana árangurinn gegn öðrum liðum sem þangað komust. Þýskaland (C-riðill) og Slóvenía (D-riðill) urðu neðst í sínum riðlum og eru því úr leik.
Mest lesið Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Handbolti Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Fótbolti Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Enski boltinn Haukur allt í öllu hjá Löwen Handbolti Skellt í lás eftir afhroðið Íslenski boltinn Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Enski boltinn Fanney og Thelma Evrópubikarmeistarar Fótbolti Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Formúla 1 Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Íslenski boltinn Grindavík - Njarðvík 68-72| Njarðvík tryggði sér oddaleik Körfubolti Fleiri fréttir Haukur allt í öllu hjá Löwen Guðjóni Val líkt við íslenskt eldfjall eftir eldræðu á blaðamannafundi Magnús kominn heim af sjúkrahúsi en tímabilinu líklega lokið Kærastan 31 ári yngri: „Ég fékk mikil viðbrögð í upphafi“ Magnús í sjúkrabíl af Hlíðarenda Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakklandi Andri fékk ekki að hjálpa pabba og lið Guðjóns Vals vann upp mikið forskot Uppgjörið: Valur - FH 32-30 | Aftur komnir með frumkvæðið Þrettán frá Gidsel en Bjarki og félagar fögnuðu Gríðarlegt áfall ÍBV fyrir úrslitin Lætur formanninn og framkvæmdastjóra HSÍ finna fyrir því Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Kraftaverk Einars Braga og félaga dugði skammt Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar Verður Elvar liðsfélagi Hauks? „Það væri óskastaðan“ Evrópskt stórlið með augu á Degi Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Uppgjörið: ÍBV - Haukar 36-31 | Eyjakonur tryggðu sér sæti í úrslitum Stjörnurnar fá frí gegn Egyptum Uppgjörið: FH - Valur 31-25 | FH jafnaði einvígið í Krikanum Stórsigur Stjörnunnar knúði fram oddaleik Magdeburg aftur á sigurbraut eftir erfiða bikarhelgi Haukar fá enn frekari liðsstyrk frá HK Elvar og félagar luku tímabilinu með sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-23| Haukar tryggðu sér oddaleik í Eyjum Viktor Gísli áfram í stuði Uppgjörið: Valur - FH 37-33 | Umdeildur vendipunktur en Valsmenn yfir „Einvígið fer ekki á einum manni“ „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Sjá meira