Ekki búist við öskufalli á höfuðborgarsvæðinu 23. apríl 2010 18:02 Mynd/Daníel Rúnarsson
Samkvæmt upplýsingum Veðurstofu hefur heldur dregið úr öskufalli frá eldgosinu í Eyjafjallajökli en spáð er suðaustlægri átt í dag og vaxandi vindi. Eitthvað öskufall er nú í átt að Fljótshlíð og verður líklega áfram norðvestur af eldstöðinni næstu daga. Í dag var tilkynnt um „öskufjúk" á Rangárvöllum og í Hveragerði, að fram kemur í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna. Gert er ráð fyrir öskumistri til norðvesturs frá eldstöðinni sem getur jafnvel náð í örlitlum mæli til höfuðborgarsvæðisins í dag og næstu daga. Með öskumistri er átt við truflun í skyggni vegna ösku og mælanlega aukningu í svifryksmengun. Mjög ólíklegt er að sýnilegt öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu næstu daga og því ekki ástæða til sérstakra aðgerða. Bændur aðstoðaðir við mjaltir Lögreglan á Hvolsvelli vill koma því á framfæri að þegar ekið er undir Eyjafjöllum er mælt með að ýtt sé á hringrásarhnapp miðstöðvakerfis bílsins, þá berst síður aska inn í ökutækið, líkt og þegar ekið er í gegn um göng. Fjöldi slökkvibíla og slökkviliðsmanna hafa unnið að því að þvo hús á öskufallssvæðinu í dag með aðstoð björgunarsveitarmanna. Bændur hafa fengið aðstoð við mjaltir og gegningar.Flugvél Gæslunnar komin til Reykjavíkur Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF er komin aftur til Reykjavíkur eftir að hafa verið staðsett á Reykjavíkurflugvelli frá því snemma í morgun en þyrlan TF-GNÁ verður áfram staðsett á Akureyri.
Eldgos og jarðhræringar Gos á Fimmvörðuhálsi Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira