Kjósendurnir sýna óánægjuna í verki 27. mars 2010 06:30 Mynd/Stefán Karlsson
Fréttaskýring: Hvað má lesa um þankagang kjósenda úr niðurstöðum skoðanakönnunar á fylgi flokkanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík í vor? Það kemur ef til vill ekki sérstaklega á óvart að Besti flokkurinn, grínframboð Jóns Gnarr, njóti nokkurs stuðnings eftir það sem á undan hefur gengið í íslenskum stjórnmálum. Fáir reiknuðu þó líklega með að flokkurinn mældist með stuðning tæplega þrettán prósenta kjósenda, eins og niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var á fimmtudagskvöld leiddu í ljós. Fengi flokkurinn þann stuðning í kosningunum næði hann tveimur mönnum í borgarstjórn. „Mitt mat er að kjósendur séu að senda stjórnmálamönnum ljótan fingur," segir Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri. Hann segir kjósendur senda stjórnmálamönnum almennt þessi skilaboð, ekki borgarfulltrúunum sérstaklega. Skilaboðin séu send með því annars vegar að neita að lýsa stuðningi við einhvern af flokkunum, og hins vegar með því að styðja yfirlýst grínframboð. Frambjóðendur Besta flokksins hafa þegar gefið út nokkurn fjölda kosningaloforða á borð við að fá íkorna í Hljómskálagarðinn, en hafa einnig lýst því yfir að þeir hyggist svíkja öll kosningaloforð. Þá er yfirlýst markmið framboðsins að koma Jóni Gnarr, skemmtikrafti og oddvita listans, í þægilega og vel launaða vinnu. Það síðastnefnda virðist í það minnsta ætla að ganga eftir. Breytist ekkert er spurningin frekar hversu marga hann tekur með sér í borgarstjórnina. Grétar Þór segir augljóst að borgarpólitíkin komist ekki að hjá borgarbúum, hún sé einfaldlega ekki í umræðunni. Almenningur virðist í það minnsta eiga nóg með að velta fyrir sér Icesave, væntanlegri rannsóknarskýrslu, atvinnuástandinu og hruninu almennt. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis, sem væntanleg er 12. apríl, mun að mati Grétars gera það að verkum að kosningabaráttan fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí verður stutt og snörp. Hann segir ólíklegt að sveitarstjórnarmálin komist að í umræðunni fyrr en í maí. Enn eru rúmir tveir mánuðir til kosninga, kosningabaráttan er eftir og því getur margt breyst. Verði niðurstaða kosninga í takt við niðurstöður könnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 er ljóst að erfitt gæti orðið að mynda starfhæfan meirihluta í borginni. Líklega veldur niðurstaðan frambjóðendum Vinstri grænna vissum áhyggjum, enda fylgi flokksins í borginni langt undir fylgi flokksins á landsvísu. Fylgið er reyndar svipað og kjörfylgi flokksins fyrir fjórum árum, en það getur varla verið ásættanlegt eftir þær breytingar sem orðið hafa á fylgi flokksins á landsvísu frá síðustu sveitastjórnarkosningum. Í raun má segja að ómögulegt væri að mynda meirihluta án aðkomu Sjálfstæðisflokksins, nema með því að bjóða Besta flokknum upp í dans. Besti flokkurinn mun líklega seint teljast álitlegur kostur til samstarfs fyrir Samfylkinguna og Vinstri græna, en öðrum er ekki til að skipta. Ekki munar þó miklu að Framsóknarflokkurinn nái manni inn í borgarstjórn. Þá hefur nýtt framboð Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa ekki byrjað að kynna sig og sínar áherslur, og óvíst er hvort Frjálslyndi flokkurinn verður í framboði. Það getur því mikið breyst fyrir kosningarnar 29. maí. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Vægari úrræði ættu að koma á undan vistun fjölskyldna í brottfararstöð Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira