Kendrick Perkins sleppur við bann - sjöunda tæknivillan dregin til baka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. maí 2010 22:45 Kendrick Perkins, miðherji Boston Celtics. Mynd/AP
Kendrick Perkins, miðherji Boston Celtics, verður ekki í banni í sjötta leik Boston Celtics og Orlando Magic í úrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta en leikurinn fer fram annað kvöld. Perkins átti að vera kominn í eins leiks bann eftir að hafa fengið tvær tæknivillur í síðasta leik en hann var því kominn yfir kvóta leikmanna sem eru sjö tæknivillur í úrslitakeppni. NBA-deildin ákvað á fundi sínum í dag að draga sjöundu tæknivillu Perkins til baka sem þýðir að hann verður með í sjötta leiknum í Boston. Orlando hefur unnið tvo leiki í röð en engu liði hefur tekist að koma til baka eftir að hafa lent 3-0 undir í einvígi í úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Kendrick Perkins var rekinn út úr húsi í fyrri hálfleik í fimmta leiknum eftir að hafa fengið þessar tvær tæknivillur. Boston tapaði þarna sínum öðrum leik í röð en liðið fær tvo leiki til viðbótar til þess að ná þessum eina sigri í viðbót og þá er mikilvægt fyrir liðið að hafa Perkins með. Perkins fékk fyrri tæknivilluna fyrir að slá pólska risann Marcin Gortat í magann en endursýningar sýna að svo var ekki. Sú tæknivilla var samt ekki dregin til baka heldur sú seinni þegar hann mótmælti dómi. Perkins mótmælti þá villu sem dæmd var á hann en gerði það um leið og hann gekk í burtu frá dómaranum sem gaf honum tæknivilluna.
NBA Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Tuchel bannar Englendingum að stökkva yfir auglýsingaskilti eftir ófarir Henderson Fótbolti Í átta liða úrslit í fyrsta sinn í 72 ár Fótbolti Segist ekkert hafa með afléttingu bannsins að gera Fótbolti Fleiri fréttir 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Sjá meira