Skoðun

Frístundastrætó í Grafarvogi

Á fundi borgarstjórnar í fyrradag var tillaga Samfylkingar um frístundastrætó í Grafarvogi samþykkt einróma. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir íbúa en í þessu stóra og barnmarga hverfi má ætla að í hverri viku séu um 15.000 ferðir farnar vegna frístundastarfs.

Þetta kostar foreldra bæði mikinn tíma og peninga en ef miðað er við forsendur ríkisskattstjóra, 92 kr/km, kemur í ljós að heildarkostnaður foreldra af skutlinu er rúmlega 33 milljónir á mánuði. Ef reiknað er með að hver ferð taki um 20 mínútur að meðaltali sést að auk þess fara í hverjum mánuði um 20.000 klukkustundir af tíma foreldra í skutlið.

Til að spara um eina og hálfa milljón á mánuði voru hverfisleiðirnar í Grafarvogi skornar niður 1. febrúar síðastliðinn og ganga síðan aðeins á 60 mínútna fresti. Það var óheppileg þróun en við það hættu langflest börn að geta nýtt sér vagnana til að komast í frístundir.

Þessari þróun vilja íbúar í Grafarvogi snúa við en að frumkvæði hverfisráðs Grafarvogs eru nú skólar og frístundaaðilar í Grafarvogi að vinna með hverfisráðinu og þjónustumiðstöð Grafarvogs að grænni samgöngustefnu hverfisins.

Að útrýma þörfinni fyrir skutlið er þó ekki aðeins spurning um bætt öryggi í umferðinni, tíma og peninga, minni mengun og eftirsóknarverðan hverfisbrag. Hér er ekki síður um réttlætismál að ræða því það búa ekki öll börn svo vel að foreldrar þeirra hafi tíma eða aðstöðu til að skutlast. Þetta hefur íþróttafélagið Fjölnir bent á og lagt ríka áherslu á að íþróttastarfið standi öllum jafnt til boða. Ef áfram er stuðst við forsendur ríkisskattstjóra sést að skutl vegna þriggja æfinga í viku kostar hátt í 7.000 kr á mánuði. Hætt er við að það sé meira en margir ráða við - ekki síst þar sem börnin eru mörg.

Samþykkt borgarstjórnar á tillögu Samfylkingarinnar um frístundastrætó boðar tímamót og vonandi endalok skutlsins.

Höfundur er 1. varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar.




Skoðun

Sjá meira


×