Skoðun

Ódýrt og afar mikilvægt öryggistæki

Nú er skammdegið skollið á og þá er mikilvægt að allir vegfarendur séu með endurskinsmerki svo að þeir séu sem öruggastir í umferðinni. Myrkrið veldur því að ökumenn sjá oft illa í kringum sig þrátt fyrir götulýsingu og yfirleitt góð ökuljós á bifreiðum. Endurskinsmerki gera það að verkum að ökumenn taka mun fyrr eftir gangandi vegfarendum þegar dimmt er úti. Mikilvægt er að endurskinsmerkin séu vel sýnileg og er best að hafa endurskinsmerkin fremst á ermum, á skóm eða neðarlega á buxnaskálmum. Þá virka endurskinsmerkin eins og blikkljós þegar ljós skín á þau. Því fyrr og betur sem ökumenn greina gangandi vegfarendur, þeim mun meira er öryggi þeirra síðarnefndu í umferðinni. Það er staðreynd að ökumenn sjá gangandi vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr og því getur notkun endurskinsmerkja skilið milli lífs og dauða.

Allir ættu að finna endurskin við hæfi en til eru margar gerðir og stærðir eins og endurskinsvesti, endurskinsborðar, límmerki, barmmerki eða hangandi endurskinsmerki. Á mörgum skólatöskum eru endurskinsmerki og gott er að líma endurskin á barnavagna, sleða, bakpoka og skíðastafi.

Fullorðnir eiga að sjálfsögðu að vera fyrirmyndir barna og vera með endurskinsmerki á sínum flíkum. Nauðsynlegt er fyrir skokkara að vera í endurskinsvestum eða með gott endurskin á æfingafatnaði þegar æft er utandyra. Endurskinsmerki er einnig hægt að líma á hunda- og kattahálsbönd og sjálfsagt er að bregða endurskinsborðum um fætur hestsins ef farið er í reiðtúr.

Líklegt er að til séu endurskinsmerki í skúffum og skápum á flestum heimilum og þá er um að gera að nota þau merki, enda gera þau lítið gagn ef þau eru ekki notuð. Kaupþing hóf í vikunni endurskinsmerkjaátak í samstarfi við Umferðarstofu og er hægt að nálgast endurskinsmerki í útibúum Kaupþings víða um land. Að öðrum kosti er hægt að fá endurskinsmerki í mörgum verslunum, apótekum og bensínstöðvum.

Sjáumst í umferðinni, vel sýnileg.

Höfundur er fræðslufulltrúi hjá Umferðarstofu.




Skoðun

Sjá meira


×