Skoðun

Hættuleg meinloka

Tryggvi Agnarsson skrifar

Sú alvarlega meinloka virðist nú ríkjandi meðal ýmissa ráðamanna þjóðarinnar og hjá ríkis­bönkunum að alls ekki megi koma skuldugum fyrirtækjum til hjálpar með niðurfærslum eða afskriftum skulda nema nýir eigendur taki fyrst við rekstri þeirra.

Þetta hlýtur að byggja á því að núverandi eigendur hafi staðið sig illa við rekstur félaga sinna og því þurfi að flæma þá frá. En þetta er alls ekki alltaf raunin. Mörg fyrirtæki, sem hafa verið vel og skynsamlega rekin og skila ágætri framlegð eru nú orðin allt of skuldug vegna þess að áður hófleg skuldsetning þeirra hefur vaxið gríðarlega vegna hrunsins og er nú orðin óbærileg.

Með þessari ábendingu er ég alls ekki að gera lítið úr nauðsyn þess að þeim eigendum og stjórnendum fyrirtækja, sem rekið hafa fyrirtæki sín illa verði komið frá og nýju fólki komið að stjórnveli.

Það er að mínu viti brýn nauðsyn að greina hafrana frá sauðunum í þessum efnum og koma strax þeim fyrirtækjum til hjálpar þar sem skuldavanda vegna hrunsins verður um kennt en ekki vanhæfni stjórnenda og eigenda.

Höfundur er lögmaður.










Skoðun

Sjá meira


×