Fyrningu ráðherrabrota seinkað 29. desember 2009 05:00 Ábyrg? Hægt verður að sækja til saka ráðherra sem sátu frá desember 2006 til saka fyrir möguleg brot á lögum um ráðherraábyrgð. fréttablaðið/antin
Möguleg brot á lögum um ráðherraábyrgð fyrnast á fjórum árum en ekki þremur, nái breytingar allsherjarnefndar Alþingis á frumvarpi til breytinga á lögum um rannsókn á falli bankanna og tengdum atburðum fram að ganga. Nefndin afgreiddi breytingartillögu þar um á fundi í gærmorgun. Samkvæmt lögum um ráðherraábyrgð frá 1963 getur málshöfðun út af embættisbroti ráðherra ekki átt sér stað ef þrjú ár eru liðin frá því að brot var framið. Í lögunum er þó kveðið á um að skipun rannsóknarnefndar þingmanna, á grundvelli stjórnarskrárinnar, til að athuga störf ráðherra geti rofið fyrningu. Geti Alþingi þá samþykkt málshöfðun innan árs frá kosningu nefndarinnar. Rannsóknarnefnd Alþingis nýtur ekki slíkrar stjórnarskrárbundinnar stöðu og áhöld voru uppi um hvort níu manna þingmannanefnd sem fjalla á um skýrslu rannsóknarnefndarinnar hefði slíka stöðu samkvæmt frumvarpinu. Með breytingu þess er þingmannanefndinni veitt slík stjórnarskrárbundin staða og þar með tryggt að hægt verði að sækja ráðherra til ábyrgðar fyrir möguleg brot á lögum um ráðherraábyrgð sem framin voru frá desember 2006. - bþs
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Innlent Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Erlent Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Innlent Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Innlent Mette-Marit í einkaviðtali við NRK: „Að sjálfsögðu óska ég þess að hafa aldrei hitt hann“ Erlent „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Innlent Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka Innlent Eldur í rafgeymum hjá Hringrás Innlent „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Innlent Gular viðvaranir um allt vestanvert landið til morguns Veður Fleiri fréttir Einn alvarlega slasaður af sextán sem voru inni í húsinu Bein útsending: Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál Þrír fluttir á slysadeild vegna sprengingar í Korngörðum Eldur í rafgeymum hjá Hringrás Tvennt flutt á sjúkrahús eftir árekstur við Eyrarbakka „Finnst allt benda til þess að þetta sé að lognast út af“ Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Óttast að Smalaholtsskógur verði Garðabæ að bráð Segir fyrri ríkisstjórn ekki hafa treyst sér í Fjarðarheiðargöng „Eins og við séum að fara ansi mörg ár aftur í tímann“ Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Snjóflóðahætta og öfgakarlmennska áhrifavalda Dómur staðfestur yfir árásarmanni Tinnu Milljarður í holufyllingar og Einar minnti á heilahristing Patta Lagt til að bílastæðum fjölgi við nýbyggingar Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Grunsamlegir póstar í umferð: „Tafarlaus aðgerð nauðsynleg“ Dælan anni ekki vatnsmagni Hörð gagnrýni þegar tenging bóta við launavísitölu var samþykkt Mannréttindadómstóllinn vísar máli Nöru frá Minnisvarði um rauðsokkur rís í sumar Lögreglustöðinni verði lokað verði húsnæðið ekki lagað Gríðarstór vatnselgur undir Breiðholtsbrú Hart sótt að fjármálaráðherra „Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Hugsi yfir fréttum af brunavörnum á Stuðlum Þingheimur hló að þýðingu Daða Más Ráðherrabrölt Flokks fólksins kostað 18 milljónir Vonskuveður víðast hvar og Eyjólfur varði Fljótagöng Sjá meira