Samdrátturinn heldur áfram í smávöruversluninni 13. nóvember 2009 10:45
Velta í dagvöruverslun dróst saman um 3,9% á föstu verðlagi í október miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 9.7% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðarbundnum þáttum nam samdráttur í veltu dagvöruverslana í október 0,3% frá síðasta mánuði á föstu verðlagi og 4,1% frá október mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 14,2% á síðastliðnum 12 mánuðum. Þetta kemur fram í nýju yfirliti frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að velta í áfengisverslun minnkaði um 25,1% í október miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 0,2% á breytilegu verðlagi. Salan dróst saman um 0,7% frá september mánuði þegar tekið hefur verið tillit til verðlagsbreytinga og árstíðarbundinna þátta. Verð á áfengi var 33,7% hærra í október síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra. Fataverslun var 11,7% minni í október miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi en jókst um 5,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum hafði í október hækkað um 19,1% frá sama mánuði í fyrra. Velta skóverslunar minnkaði um 18,7% í október á föstu verðlagi og jókst um 2,2% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Í október hafði verð á skóm hækkað um 25,7% frá síðasta ári. Velta húsgagnaverslana var um 24,1% minni í október en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og 14,7% minni á breytilegu verðlagi. Þess má geta að velta síðasta mánaðar var einnig lægri en hún var í október árið 2007. Í síðastliðnum mánuði höfðu húsgögn hækkað um 12,3% frá sama tíma árið áður. Sala á raftækjum dróst í október saman um 28,2% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 6,2% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Á milli mánaðanna september og október dróst raftækjasala saman um 1,5% á föstu verðlagi. Enn sjást ekki merki um bata í smásöluverslun og stendur samdráttarskeið yfir sem segja má að hafi hafist á vormánuðum ársins 2008. Sem fyrr er það sala varanlegra neysluvara sem hefur dregist hvað mest saman en síðan Rannsóknasetur verslunarinnar hóf að safna gögnum um sölu húsgagna í ágúst 2007 hefur velta minnkað um nær helming. Raunlækkun veltu á þessum rúmu tveim árum er yfir 60%, þ.e. þegar tekið hefur verið tillit til hækkunar verðlags. Svipuð staða birtist þegar horft er til sölu raftækja, en á þeim markaði er samdráttur verulegur. Velta í áfengissölu lækkaði um rúm 25% milli ára í október síðastliðnum á föstu verðlagi en hafa verður í huga að sérstakar aðstæður voru uppi í október 2008. Föstudaginn 31. október í fyrra tóku Vínbúðirnar við rúmlega 44 þúsund viðskiptavinum, þegar fréttir bárust af því að hækkun á áfengisgjaldi væri væntanleg næsta dag. Veruleg veltuaukning mældist vegna þessa í október á kostnað veltunnar í næsta mánuði á eftir. Það má því ætla að munur milli ára í áfengissölu minnki í nóvember.
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira