Ekki meira „hreint loft“ 2. febrúar 2009 04:45 Ólafur F. Magnússon skrifar um Hrein Loftsson og DV. Nýlega bártust fréttir um að Baugs- og einkavinavæðingarmaðurinn, Hreinn Loftsson, væri orðinn eini eigandi útgáfufélagsins Birtings, sem m.a. gefur út DV. Um svipað leyti bárust fréttir af því að sá sami Hreinn hygðist einnig eignast Morgunblaðið. Af því tilefni ritaði Agnes Bragadóttir grein í Moggann, þar sem hún lét í ljós þá von að títtnefndur Hreinn yrði ekki eigandi blaðsins, enda hefur hann verið talinn sá maður sem gefur ritstjórn DV fyrirmæli um það, hverra mannorði skuli eytt á síðum blaðsins og hverra ekki. Hreinn Loftsson hefur verið hatursmaður minn, frá því að ég gekk úr Sjálfstæðisflokknum árið 2001. Hreinn var þá formaður einkavæðingarnefndar ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar en gerðist í kjölfarið auðmaður með því að verða taglhnýtingur Baugsveldisins. Sem eigandi og áhrifamaður fjölmiðla hefur Hreinn notað áhrif sín á DV til að koma þungu höggi á mannorð mitt, eins og ótrúlega rætin skrif DV um persónu mína, daginn eftir að ég varð borgarstjóri, bera vitni um. Í helgarblaði DV föstudaginn 30. janúar sl., er enn á ný vegið að persónu minni í grein undir fyrirsögninni „Ólafur F. neitar að skila 3 milljónum". Þar er látið að því liggja, að ég hafi reynt að draga að mér fé, sem Frjálslyndi flokkurinn ætti að hafa með höndum. Þessar ásakanir eru úr lausu lofti gripnar. Áðurnefnd fjárhæð er ætluð til starfsemi borgarstjórnarflokks F-lista, Frjálslyndra og óháðra, og er geymd á reikningi borgarmálafélags F-listans. Fyrir liggur lögfræðileg álitsgerð um að hér sé rétt að verki staðið. Allir sem þekkja til starfa minna sem kjörins fulltrúa Reykvíkinga vita að ég hef sýnt ráðdeild og heiðarleika í hvívetna og barist gegn þeim flottræfilshætti og fyrirgreiðslupólitík, sem hefur leikið íslenskt samfélag svo grátt. Ég frábið mér þess vegna, að eigandi DV, sem gjarnan kennir sig við „hreint loft", mengi líf mitt og mannorð meira en hann hefur þegar gert. Höfundur er læknir og borgarfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Ólafur F. Magnússon skrifar um Hrein Loftsson og DV. Nýlega bártust fréttir um að Baugs- og einkavinavæðingarmaðurinn, Hreinn Loftsson, væri orðinn eini eigandi útgáfufélagsins Birtings, sem m.a. gefur út DV. Um svipað leyti bárust fréttir af því að sá sami Hreinn hygðist einnig eignast Morgunblaðið. Af því tilefni ritaði Agnes Bragadóttir grein í Moggann, þar sem hún lét í ljós þá von að títtnefndur Hreinn yrði ekki eigandi blaðsins, enda hefur hann verið talinn sá maður sem gefur ritstjórn DV fyrirmæli um það, hverra mannorði skuli eytt á síðum blaðsins og hverra ekki. Hreinn Loftsson hefur verið hatursmaður minn, frá því að ég gekk úr Sjálfstæðisflokknum árið 2001. Hreinn var þá formaður einkavæðingarnefndar ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar en gerðist í kjölfarið auðmaður með því að verða taglhnýtingur Baugsveldisins. Sem eigandi og áhrifamaður fjölmiðla hefur Hreinn notað áhrif sín á DV til að koma þungu höggi á mannorð mitt, eins og ótrúlega rætin skrif DV um persónu mína, daginn eftir að ég varð borgarstjóri, bera vitni um. Í helgarblaði DV föstudaginn 30. janúar sl., er enn á ný vegið að persónu minni í grein undir fyrirsögninni „Ólafur F. neitar að skila 3 milljónum". Þar er látið að því liggja, að ég hafi reynt að draga að mér fé, sem Frjálslyndi flokkurinn ætti að hafa með höndum. Þessar ásakanir eru úr lausu lofti gripnar. Áðurnefnd fjárhæð er ætluð til starfsemi borgarstjórnarflokks F-lista, Frjálslyndra og óháðra, og er geymd á reikningi borgarmálafélags F-listans. Fyrir liggur lögfræðileg álitsgerð um að hér sé rétt að verki staðið. Allir sem þekkja til starfa minna sem kjörins fulltrúa Reykvíkinga vita að ég hef sýnt ráðdeild og heiðarleika í hvívetna og barist gegn þeim flottræfilshætti og fyrirgreiðslupólitík, sem hefur leikið íslenskt samfélag svo grátt. Ég frábið mér þess vegna, að eigandi DV, sem gjarnan kennir sig við „hreint loft", mengi líf mitt og mannorð meira en hann hefur þegar gert. Höfundur er læknir og borgarfulltrúi.
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar