Safnað fyrir vatnsverkefni Bjarni Gíslason skrifar 10. nóvember 2009 06:00 Í dag halda fermingarbörn á öllu landinu áfram að ganga í hús og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þau hafa hjá prestinum sínum séð myndir og fræðst um munaðarlausa fjölskyldu í Úganda sem lifir við erfiðar aðstæður. Foreldrarnir eru látnir úr alnæmi og börnin þurfa að nota tvær klukkustundir á dag til að sækja vatn. En ekki bara það heldur er vatnið ókræsilegt, sótt í leirtjörn þar sem dýr og menn ganga jafnt að. Þau fá líka að heyra hvernig vatnsverkefni Hjálparstarfsins í Afríku breyta erfiðum aðstæðum til hins betra. Í Úganda eru reist hús og vatnstankar sem safna rigningarvatni, í Malaví eru grafnir og boraðir brunnar sem gefa hreint, tært og heilnæmt vatn. Hreint vatn í næsta nágrenni gjörbreytir lífinu til hins betra. Stúlkur þurfa ekki að missa af skólanum vegna tímans sem fer í að sækja vatn, heilsan verður betri og mæður og feður hafa tíma til að sinna fjölskyldunni, börnum og akri betur. Fermingarbörn láta ekki duga að fræðast um kristna trú heldur láta athafnir fylgja orðum og ganga tvö og tvö í hús með merkta og innsiglaða bauka og biðja um framlag til vatnsverkefna Hjálparstarfsins í Afríku. Þau eru fyrirmynd fyrir okkur hin um að gera eitthvað í málunum, standa upp úr sófanum og grípa til aðgerða. Allt í sjálfboðavinnu. Er það ekki einmitt slíkt hugarfar sem við þurfum á að halda á Íslandi í dag? Er það ekki einmitt slíkur kraftur sem við þurfum á að halda? Er það ekki einmitt slík samstaða sem er nauðsynleg í dag? Er það ekki slíkur kærleikur sem við þráum öll? Tökum þátt í kærleiksverki fermingarbarna, stöndum upp úr sófanum og setjum pening í baukinn til góðs fyrir þá sem hafa ekki einu sinni aðgang að hreinu vatni. Höfundur er fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Falleinkunn skólakerfis? Helga Þórisdóttir Skoðun Halldór 28.06.2025 Halldór Hvers vegna berðu kross? Hrafnhildur Sigurðardóttir Skoðun Hvar er auðlindarentan? Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Þannig gerum við þetta? Ísak Ernir Kristinsson Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson Skoðun Hætt við að hækka ekki skatta á almenning Bryndís Haraldsdóttir Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Hver borgar brúsann? Ingibjörg Isaksen Skoðun Flokkurinn hans Gunnars Smára? Guðbergur Egill Eyjólfsson Skoðun Skoðun Skoðun Flokkurinn hans Gunnars Smára? Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Raforkuverð: Stórnotendur og almenningur Ingvar Júlíus Baldursson skrifar Skoðun Hætt við að hækka ekki skatta á almenning Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Skattafíkn í skjóli réttlætis: Tímavélin stillt á 2012 Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Hver borgar brúsann? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Hvers vegna berðu kross? Hrafnhildur Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þannig gerum við þetta? Ísak Ernir Kristinsson skrifar Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Falleinkunn skólakerfis? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þjónusta sem gleður – skilar sér beint í kassann Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvar er auðlindarentan? Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Miðflokkurinn – Rödd skynseminnar í borginni Ómar Már Jónsson skrifar Skoðun Virði barna og ungmenna Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Sættir þú þig við þetta? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Alþingi gleymir aftur fötluðum börnum Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lægri gjöld, fleiri tækifæri Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Tölum um stóra valdaframsalsmálið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar Skoðun Öflugar varnir krefjast stöndugra fréttamiðla Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Gott frumvarp, en hvað með verklagið? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson skrifar Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag Bolli Héðinsson skrifar Skoðun „Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum Eyrún Arnarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál Grímur Atlason skrifar Skoðun Í vörn gegn sjálfum sér? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin stendur með sjúkraliðum Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Í dag halda fermingarbörn á öllu landinu áfram að ganga í hús og safna fyrir vatnsverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. Þau hafa hjá prestinum sínum séð myndir og fræðst um munaðarlausa fjölskyldu í Úganda sem lifir við erfiðar aðstæður. Foreldrarnir eru látnir úr alnæmi og börnin þurfa að nota tvær klukkustundir á dag til að sækja vatn. En ekki bara það heldur er vatnið ókræsilegt, sótt í leirtjörn þar sem dýr og menn ganga jafnt að. Þau fá líka að heyra hvernig vatnsverkefni Hjálparstarfsins í Afríku breyta erfiðum aðstæðum til hins betra. Í Úganda eru reist hús og vatnstankar sem safna rigningarvatni, í Malaví eru grafnir og boraðir brunnar sem gefa hreint, tært og heilnæmt vatn. Hreint vatn í næsta nágrenni gjörbreytir lífinu til hins betra. Stúlkur þurfa ekki að missa af skólanum vegna tímans sem fer í að sækja vatn, heilsan verður betri og mæður og feður hafa tíma til að sinna fjölskyldunni, börnum og akri betur. Fermingarbörn láta ekki duga að fræðast um kristna trú heldur láta athafnir fylgja orðum og ganga tvö og tvö í hús með merkta og innsiglaða bauka og biðja um framlag til vatnsverkefna Hjálparstarfsins í Afríku. Þau eru fyrirmynd fyrir okkur hin um að gera eitthvað í málunum, standa upp úr sófanum og grípa til aðgerða. Allt í sjálfboðavinnu. Er það ekki einmitt slíkt hugarfar sem við þurfum á að halda á Íslandi í dag? Er það ekki einmitt slíkur kraftur sem við þurfum á að halda? Er það ekki einmitt slík samstaða sem er nauðsynleg í dag? Er það ekki slíkur kærleikur sem við þráum öll? Tökum þátt í kærleiksverki fermingarbarna, stöndum upp úr sófanum og setjum pening í baukinn til góðs fyrir þá sem hafa ekki einu sinni aðgang að hreinu vatni. Höfundur er fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar.
Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar
Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar
Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar