Skoðun

Gerum betur

Auður Lilja Erlingsdóttir, Freyr Rögnvaldsson, Steinunn Rögnvaldsdóttir, Þórunn Ólafsdóttir og Þórunn Rögnvaldsdóttir skrifa um hælisleitendur

Nýlega var þremur mönnum vísað af landi brott án þess að umsóknir þeirra um hæli á Íslandi hlytu efnislega meðferð. Umsækjendurnir voru sendir til Grikklands á grundvelli Dyflinnarsamkomulagsins þrátt fyrir að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Rauði krossinn og Amnesty International hafi ítrekað lýst yfir áhyggjum af þeim aðstæðum sem hælisleitendur búa við þar í landi.

Í ágúst síðastliðnum gaf Rauði krossinn út svarta skýrslu um aðbúnaðinn í Grikklandi. Þar segir m.a. að um 90% hælisleitenda fái ekki gistipláss í móttökumiðstöðvum fyrir hælisleitendur, enga fjárhagslega aðstoð, mat, fatnað eða heilbrigðisaðstoð frá grískum stjórnvöldum. Auk þess er ófullnægjandi aðgengi að upplýsingum, túlkum og lagalegri ráðgjöf. Þá er atvinnu erfitt að fá vegna tungumálaörðugleika, skorts á fastri búsetu sem er nauðsynleg til að fá atvinnuleyfi og slæms efnahagsástands.

Brottvísanir hælisleitendanna frá Íslandi ættu ekki að koma á óvart enda hefur slík meðferð í langan tíma verið regla frekar en undantekning hér á landi. Það sem kemur greinarhöfundum, sem allir eru félagar í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði, þó í opna skjöldu er að þetta gerist undir verndarvæng ríkisstjórnar flokks þeirra og Samfylkingarinnar - flokka sem kenna sig við félagslegt réttlæti.

Vissulega hefur ríkisstjórn þessara flokka tekið til í málaflokknum og lagt til úrbætur frá því sem áður var, en það er ekki nóg að gera úttektir og skýrslur þegar mannslíf eru í húfi. Fólk er á vergangi í Grikklandi, við hrikalegar aðstæður, í okkar nafni. Við berum ábyrgð í þessu máli. Ekki einungis vegna þess að við berum öll ábyrgð á hvort öðru og ekki einungis vegna þess að kúgun, ofbeldi og vonlaus lífskjör sem hælisleitendur eru að flýja eru sameiginlegt vandamál heimsbyggðarinnar. Okkar ábyrgð er ekki hvað síst að finna í stuðningi íslenskra stjórnvalda við stríðsrekstur í Írak og Afganistan. Hvernig er okkur stætt á að senda fólk á flótta frá okkur, fólk sem hefur þurft að flýja heimili sín vegna hernaðar sem Ísland studdi - og styður enn með aðild sinni að NATO?

Undirrituð skora á ríkisstjórn Íslands að endurskoða þessa ákvörðun þegar í stað og taka mál þessara manna, sem og allra annarra sem sækja um hæli hér á landi, til efnislegrar meðferðar. Með því móti getum við tekið þátt í að minnka álag á lönd eins og Grikkland, sem vegna legu sinnar eru fyrsti viðkomustaður flóttamanna á Schengen-svæðinu, og þannig stuðlað að bættum aðstæðum flóttamanna. Ef fleiri þjóðir færu svo að okkar fordæmi og öxluðu ábyrgð væri jafnvel von á að Grikkland fengi færi á að bæta aðbúnað og aðstæður hælisleitenda þar. Fyrst og fremst er það líka hið rétta að gera.

Ýmsir hafa áhyggjur af því að með því að veita fólki hæli séum við að opna landið fyrir flóðbylgju hælisleitenda. Slíku hefur Ísland aldrei staðið frammi fyrir. Kannski verður það stórt vandamál einhvern daginn. Við skulum taka á slíku vandamáli þegar við stöndum frammi fyrir því. En í dag er ekki sá dagur. Við þurfum ekki í dag að taka ákvörðun um hvernig þessum málum verður háttað næstu hundrað árin. Það sem við þurfum að gera akkúrat núna og alltaf í framtíðinni er að leggja okkar af mörkum og tryggja hverri manneskju grundvallarmannréttindi. Ef þessi ríkisstjórn gerir það ekki, hver þá?

Höfundar eru félagar í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði.

Freyr Rögnvaldsson
Steinunn Rögnvaldsdóttir


Þórunn Ólafsdóttir
Þórunn Rögnvaldsdóttir



Skoðun

Skoðun

Vegið að ís­lenska líf­eyris­kerfinu

Björgvin Jón Bjarnason,Þóra Eggertsdóttir,Halldór Kristinsson,Guðmundur Svavarsson,Elsa Björk Pétursdóttir,Jón Ólafur Halldórsson,Arnar Hjaltalín skrifar

Sjá meira


×