Hefur ekki borist svar frá KSÍ varðandi kampavínsmálið 20. nóvember 2009 12:13 Mynd/Arnþór Birkisson
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, telur mikilvægt að Knattspyrnusamband Íslands setji reglur um framferði fulltrúa sambandsins erlendis og hér á landi. Hún er ekki búin að fá formlegt svar frá Knattspyrnusambandinu varðandi kampavínsmálið svokallaða. Stjórn Knattspyrnusambands Íslands ákvað á fundi sínum í gær að ekkert verði aðhafst í máli Pálma Jónssonar, fjármálastjóra sambandsins, vegna eyðslu hans upp á þrjár milljónir króna á þáverandi gengi á nektarstað í Sviss árið 2005. Stjórnin telur ekki tilefni til að bregðast frekar við þessu máli þar sem Pálmi hafi verið áminntur og hlotið refsingu sem þótt hæfileg á sínum tíma. Hann mun því starfa áfram hjá KSÍ. Skipaður verður starfshópur til að setja nýjar siðareglur fyrir sambandið. „Ég er reyndar ekki búinn að fá formlegt svar frá KSÍ. Ég er bara búinn að sjá þá yfirlýsingu sem birtist í fjölmiðlum í gær og ég bíð eftir hinu formlega svari," sagði Katrín að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. „Ég vil bara segja það að ég held að sumu leyti sé það mikilvægt sem kom fram í þessari yfirlýsingu að KSÍ ætli að móta sér reglur um framferði fulltrúa KSÍ bæði erlendis og hérlendis. Ég held þetta sé eitthvað við þurfum líka að ræða almennt í íþróttahreyfingunni," sagði Katrín.
Tengdar fréttir Stjórn KSÍ biðst afsökunar á kampavínsmálinu Stjórn KSí hyggst ekki aðhafast frekar í máli fjármálastjóra sambandsins en hann heimsótti strípibúllu í Sviss fyrir fjórum árum þar sem hann notaði greiðsluskort KSÍ. Fjármálastjórnin mun því starfa áfram hjá sambandinu. Stjórnin harmar tildrög málsins og biður þjóðina, knattspyrnuhreyfinguna og aðildarfélög sín afsökunar á því. 19. nóvember 2009 19:03 KSÍ rukkað fyrir kampavín og klám Óljóst er hvort fjármálastjóri Knattspyrnusambands Íslands framvísaði korti sambandsins á nektarstað í Sviss eða hvort það var tekið ófrjálsri hendi. Svissneski vefmiðilinn 20minutenonline.ch segir frá því að starfsmaður KSÍ og sambandið sjálft hafi verið rukkað fyrir jafnvirði átta milljóna króna eftir næturheimsókn starfsmannsins á strípibúllu í Zürich. Af þessu hafi spunnist dómsmál. 7. nóvember 2009 03:00 Efast um að KSÍ geti samið siðareglur Guðný Gústafsdóttir, talskona femínista, segir afgreiðslu Knattspyrnusambands Íslands í máli fjármálastjóra sambandsins í kampavínsmálinu hlægilega. Hún efast um að þeir sem afgreiði málið með þessum hætti geti samið siðareglur fyrir sambandið, eins og stjórnin hyggst gera. Rætt var við Guðnýju í seinnifréttum Ríkissjónvarpsins. 19. nóvember 2009 22:11 Kampavínsmálið: Mál eins manns breytir engu um styrki til KSÍ Forsvarsmaður eins stærsta styrktaraðila KSÍ segir að mál eins manns breyti ekki afstöðu fyrirtækisins til sambandsins. Styrktarsamningurinn sé fyrir íslensk knattspyrnu, íslensk ungmenni og íslensku landsliðin. Menntamálaráðherra telur þetta mál ekki vera íþróttahreyfingunni til framdráttar. 10. nóvember 2009 12:05 Vilja að stjórn KSÍ segi af sér vegna heimsóknar á strípibúllu Femínistafélag Íslands fordæmir framferði fjármálastjóra Knattspyrnufélags Íslands og viðbrögð sambandsins við næturheimsókn fjármálastjórans á nektarstað í Sviss. Félagið krefst þess að stjórnin segi af sér og fjármálastjóranum verði vikið úr starfi hið fyrsta. 7. nóvember 2009 14:03 Stjórnarmaður KSÍ vill setja siðareglur Ingibjörg Hinriksdóttir, stjórnarmaður í Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ), telur að ekki hafi verið tekið rétt á málum fjármálastjóra sambandsins, en milljónir voru teknar af korti sambandsins sem hann var með á nektarstað í Sviss. Ingibjörg telur að málið hefði átt að vera opinbert frá fyrstu stundu. 11. nóvember 2009 06:00 Starfsmaður KSÍ fórnarlamb skipulagðrar glæpastarfsemi Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, var með Pálma Jónassyni, fjármálastjóra KSÍ, í ferð í Sviss þegar 3,2 milljónir króna voru teknar út af greiðslukorti Pálma Jónssonar og greitt var fyrir þjónustu í næturklúbbi. Hann var hins vegar ekki með Pálma inni á viðkomandi næturklúbbi. Þetta sagði Geir í Kastljósi RÚV í kvöld. 9. nóvember 2009 19:55 Stjórn KSÍ fundar um kampavínsmálið Stjórn Knattspyrnusambands Íslands situr á fundi og ræðir mál Pálma Jónssonar, fjármálastjóra sambandsins. Eins og kunnugt er heimsótti hann strípibúllu í Sviss fyrir fjórum árum þar sem hann notaði greiðsluskort KSÍ. 19. nóvember 2009 17:28 Mest lesið Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Innlent Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Innlent Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Innlent Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Innlent Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Innlent Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Erlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Innlent Fleiri fréttir „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Sjá meira
Stjórn KSÍ biðst afsökunar á kampavínsmálinu Stjórn KSí hyggst ekki aðhafast frekar í máli fjármálastjóra sambandsins en hann heimsótti strípibúllu í Sviss fyrir fjórum árum þar sem hann notaði greiðsluskort KSÍ. Fjármálastjórnin mun því starfa áfram hjá sambandinu. Stjórnin harmar tildrög málsins og biður þjóðina, knattspyrnuhreyfinguna og aðildarfélög sín afsökunar á því. 19. nóvember 2009 19:03
KSÍ rukkað fyrir kampavín og klám Óljóst er hvort fjármálastjóri Knattspyrnusambands Íslands framvísaði korti sambandsins á nektarstað í Sviss eða hvort það var tekið ófrjálsri hendi. Svissneski vefmiðilinn 20minutenonline.ch segir frá því að starfsmaður KSÍ og sambandið sjálft hafi verið rukkað fyrir jafnvirði átta milljóna króna eftir næturheimsókn starfsmannsins á strípibúllu í Zürich. Af þessu hafi spunnist dómsmál. 7. nóvember 2009 03:00
Efast um að KSÍ geti samið siðareglur Guðný Gústafsdóttir, talskona femínista, segir afgreiðslu Knattspyrnusambands Íslands í máli fjármálastjóra sambandsins í kampavínsmálinu hlægilega. Hún efast um að þeir sem afgreiði málið með þessum hætti geti samið siðareglur fyrir sambandið, eins og stjórnin hyggst gera. Rætt var við Guðnýju í seinnifréttum Ríkissjónvarpsins. 19. nóvember 2009 22:11
Kampavínsmálið: Mál eins manns breytir engu um styrki til KSÍ Forsvarsmaður eins stærsta styrktaraðila KSÍ segir að mál eins manns breyti ekki afstöðu fyrirtækisins til sambandsins. Styrktarsamningurinn sé fyrir íslensk knattspyrnu, íslensk ungmenni og íslensku landsliðin. Menntamálaráðherra telur þetta mál ekki vera íþróttahreyfingunni til framdráttar. 10. nóvember 2009 12:05
Vilja að stjórn KSÍ segi af sér vegna heimsóknar á strípibúllu Femínistafélag Íslands fordæmir framferði fjármálastjóra Knattspyrnufélags Íslands og viðbrögð sambandsins við næturheimsókn fjármálastjórans á nektarstað í Sviss. Félagið krefst þess að stjórnin segi af sér og fjármálastjóranum verði vikið úr starfi hið fyrsta. 7. nóvember 2009 14:03
Stjórnarmaður KSÍ vill setja siðareglur Ingibjörg Hinriksdóttir, stjórnarmaður í Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ), telur að ekki hafi verið tekið rétt á málum fjármálastjóra sambandsins, en milljónir voru teknar af korti sambandsins sem hann var með á nektarstað í Sviss. Ingibjörg telur að málið hefði átt að vera opinbert frá fyrstu stundu. 11. nóvember 2009 06:00
Starfsmaður KSÍ fórnarlamb skipulagðrar glæpastarfsemi Geir Þorsteinsson, formaður Knattspyrnusambands Íslands, var með Pálma Jónassyni, fjármálastjóra KSÍ, í ferð í Sviss þegar 3,2 milljónir króna voru teknar út af greiðslukorti Pálma Jónssonar og greitt var fyrir þjónustu í næturklúbbi. Hann var hins vegar ekki með Pálma inni á viðkomandi næturklúbbi. Þetta sagði Geir í Kastljósi RÚV í kvöld. 9. nóvember 2009 19:55
Stjórn KSÍ fundar um kampavínsmálið Stjórn Knattspyrnusambands Íslands situr á fundi og ræðir mál Pálma Jónssonar, fjármálastjóra sambandsins. Eins og kunnugt er heimsótti hann strípibúllu í Sviss fyrir fjórum árum þar sem hann notaði greiðsluskort KSÍ. 19. nóvember 2009 17:28