Landsbankinn og aðgengi fatlaðra 29. október 2009 06:00 leiðaragrein Þorkels Sigurlaugssonar sem birtist í Fréttablaðinu 26. október var vakin athygli á myndbroti úr þætti þess snjalla tvíeykis Audda og Sveppa frá því föstudagskvöldið 23. október á Stöð 2. Í þættinum höfðu þeir Auddi og Sveppi reynt að komast inn í aðalútibú Landsbankans á hjólastólum á tveimur stöðum, en gengið afleitlega og verið fremur illa tekið af hálfu öryggisvarðar í bankanum. Vera má að öryggisvörðurinn hafi haldið að hinir kunnu spaugarar hafi ætlað sér það sem þeir helst eru þekktir fyrir en ekki talið að þeir væru að fjalla um alvörumál. Framkoma hans var hins vegar ekki í þeim anda sem bankinn kýs og verður farið yfir það mál eins og eðlilegt er. Rétt er að geta þess að aðgangur er fyrir hjólastóla frá Hafnarstræti í aðalútibúið, þótt hann láti lítið yfir sér. Því miður var tvímenningunum og fylgdarliði ekki bent á hann. Þorkell Sigurlaugsson notar tækifærið í fyrrnefndri grein til að gagnrýna bankann fyrir slælegt aðgengi fatlaðra að aðalútibúi hans. Gagnrýnin á rétt á sér, en þess verður að geta að bankinn hefur á undanförnum árum tvívegis sótt um leyfi byggingaryfirvalda til að byggja hjólastólabrú eða –rampa, fyrst við aðaldyr á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis og síðar við inngang í Hafnarstræti. Jafnoft hefur bankanum verið synjað um þetta leyfi af hálfu yfirvalda í Reykjavík. Jafnframt hafa aðrar leiðir verið kannaðar til að koma þessum málum í lag en sannfærandi lausn ekki fundist. Bankinn hefur nú í vinnslu hugmyndir sem lagðar verða fyrir yfirvöld í borginni í fyllingu tímans. Vonandi finnst þá viðunandi lausn og verður samráð haft við forsvarsmenn fatlaðra um málið, enda fullur skilningur á því innan bankans að úr verði að bæta. Við hæfi er að nefna að þess hefur sérstaklega verið gætt í öllum öðrum útibúum að aðgangur fyrir fatlaða sé eins og best verði við komið á hverjum stað. Landsbankinn hefur enga hagsmuni af því að haga málum með öðrum hætti. Höfundur er upplýsingafulltrúi Landsbankans. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Falleinkunn skólakerfis? Helga Þórisdóttir Skoðun Halldór 28.06.2025 Halldór Hvers vegna berðu kross? Hrafnhildur Sigurðardóttir Skoðun Hvar er auðlindarentan? Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Flokkurinn hans Gunnars Smára? Guðbergur Egill Eyjólfsson Skoðun Þannig gerum við þetta? Ísak Ernir Kristinsson Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson Skoðun Hætt við að hækka ekki skatta á almenning Bryndís Haraldsdóttir Skoðun Hver borgar brúsann? Ingibjörg Isaksen Skoðun Ísland gjaldþrota vegna fatlaðs fólks? Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er Ísrael ennþá útvalin þjóð Guðs? Ómar Torfason skrifar Skoðun Flokkurinn hans Gunnars Smára? Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar Skoðun Raforkuverð: Stórnotendur og almenningur Ingvar Júlíus Baldursson skrifar Skoðun Hætt við að hækka ekki skatta á almenning Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Skattafíkn í skjóli réttlætis: Tímavélin stillt á 2012 Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Hver borgar brúsann? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Hvers vegna berðu kross? Hrafnhildur Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þannig gerum við þetta? Ísak Ernir Kristinsson skrifar Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Falleinkunn skólakerfis? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þjónusta sem gleður – skilar sér beint í kassann Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Hvar er auðlindarentan? Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Miðflokkurinn – Rödd skynseminnar í borginni Ómar Már Jónsson skrifar Skoðun Virði barna og ungmenna Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Sættir þú þig við þetta? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Alþingi gleymir aftur fötluðum börnum Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Lægri gjöld, fleiri tækifæri Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Tölum um stóra valdaframsalsmálið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar Skoðun Öflugar varnir krefjast stöndugra fréttamiðla Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Gott frumvarp, en hvað með verklagið? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Augnablikið Magnús Jóhann Hjartarson skrifar Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar Skoðun Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag Bolli Héðinsson skrifar Skoðun „Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum Eyrún Arnarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu Svandís Svavarsdóttir skrifar Skoðun Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál Grímur Atlason skrifar Skoðun Í vörn gegn sjálfum sér? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
leiðaragrein Þorkels Sigurlaugssonar sem birtist í Fréttablaðinu 26. október var vakin athygli á myndbroti úr þætti þess snjalla tvíeykis Audda og Sveppa frá því föstudagskvöldið 23. október á Stöð 2. Í þættinum höfðu þeir Auddi og Sveppi reynt að komast inn í aðalútibú Landsbankans á hjólastólum á tveimur stöðum, en gengið afleitlega og verið fremur illa tekið af hálfu öryggisvarðar í bankanum. Vera má að öryggisvörðurinn hafi haldið að hinir kunnu spaugarar hafi ætlað sér það sem þeir helst eru þekktir fyrir en ekki talið að þeir væru að fjalla um alvörumál. Framkoma hans var hins vegar ekki í þeim anda sem bankinn kýs og verður farið yfir það mál eins og eðlilegt er. Rétt er að geta þess að aðgangur er fyrir hjólastóla frá Hafnarstræti í aðalútibúið, þótt hann láti lítið yfir sér. Því miður var tvímenningunum og fylgdarliði ekki bent á hann. Þorkell Sigurlaugsson notar tækifærið í fyrrnefndri grein til að gagnrýna bankann fyrir slælegt aðgengi fatlaðra að aðalútibúi hans. Gagnrýnin á rétt á sér, en þess verður að geta að bankinn hefur á undanförnum árum tvívegis sótt um leyfi byggingaryfirvalda til að byggja hjólastólabrú eða –rampa, fyrst við aðaldyr á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis og síðar við inngang í Hafnarstræti. Jafnoft hefur bankanum verið synjað um þetta leyfi af hálfu yfirvalda í Reykjavík. Jafnframt hafa aðrar leiðir verið kannaðar til að koma þessum málum í lag en sannfærandi lausn ekki fundist. Bankinn hefur nú í vinnslu hugmyndir sem lagðar verða fyrir yfirvöld í borginni í fyllingu tímans. Vonandi finnst þá viðunandi lausn og verður samráð haft við forsvarsmenn fatlaðra um málið, enda fullur skilningur á því innan bankans að úr verði að bæta. Við hæfi er að nefna að þess hefur sérstaklega verið gætt í öllum öðrum útibúum að aðgangur fyrir fatlaða sé eins og best verði við komið á hverjum stað. Landsbankinn hefur enga hagsmuni af því að haga málum með öðrum hætti. Höfundur er upplýsingafulltrúi Landsbankans.
Skoðun Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar
Skoðun Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar
Skoðun Listnám er lífsbjörg – opið bréf til ráðherra mennta, félags og heilbrigðismála, til stuðnings Söngskóla Sigurðar Demetz Dagbjört Andrésdóttir skrifar